Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025, tekur þátt í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs þann 25. nóvember.

Næsti gestur í Viðskiptaspjalli FVH, Kjarvals og Viðskiptaráðs er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025. Viðburðurinn fer fram á Vinnustofu Kjarvals miðvikudaginn 25. nóvember og hefst kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis.
Ásdís hefur unnið að umfangsmiklum breytingum sem bæjarstjóri undanfarin ár. Má þar nefna róttækar aðgerðir á skipulagi leikskólamála, hagræðingu í rekstri bæjarins, lækkun fasteignaskatta og nú síðast sýnt frumkvæði í baráttu við verðbólgu með þaki á gjaldskrárhækkanir sem aðrir aðilar hafa fylgt í kjölfarið.
Ásdís hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, meðal annars hjá Samtökum atvinnulífsins sem forstöðumaður efnahagssviðs og aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna. Þá hefur hún einnig starfað á fjármálamörkuðum, setið í stjórnum fyrirtækja og gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld. Hún hefur verið sýnileg í þjóðfélagsumræðu um efnahagsmál, verið rödd fyrir umbætur og lagt sitt af mörkum til skýrari stefnumótunar, jafnt fyrir opinbera aðila sem atvinnulífið í heild.
Ásdís hefur lýst sjálfri sér sem metnaðarfullri keppnismanneskju sem gangi í öll verk á þeim forsendum að leysa þurfi vandamál og yfirstíga hindranir.
Við ræðum um ferilinn, sigra jafnt sem áskoranir, gusur, golf og framtíðarsýn fyrir íslenskt atvinnulíf. Léttar veitingar í boði og skemmtileg stemning.