Miklar breytingar eru framundan með nýrri evrópskri persónuverndarlöggjöf en löggjöfin mun taka gildi þann 25. maí 2018 í Evrópu. Viðskiptaráð vill undirbúa aðildarfélaga sína fyrir þessi tímamót, en óhætt er að segja að löggjöfin muni hafa fjölþætt áhrif á starfsemi fyrirtækja á Íslandi. Á vinnustofu Viðskiptaráðs og Logos, 14. desember nk. munu Hjördís Halldórsdóttir hrl. og Áslaug Björgvinsdóttir hdl. veita sérfræðingum og stjórnendum upplýsingar um aðgerðir sem flest íslensk fyrirtæki þurfa að huga að í tilefni lagabreytinganna.