Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð kvartar til ESA vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar á húsnæðismarkaði

Viðskiptaráð hefur óskað eftir að ESA hefji rannsókn á því hvort þríþætt meðgjöf til húsnæðisfélaga brjóti gegn ákvæðum EES-samningsins um ólögmæta ríkisaðstoð. Aðstoðin er veitt í formi lóðaúthlutana, stofnframlaga og niðurgreiddra lána og jafngildir 46% niðurgreiðslu lóða- og byggingarkostnaðar nýrra íbúða.

Viðskiptaráð Íslands hefur sent Eftirlitsstofnun EFTA (e. Efta Surveilance Authority, ESA) kvörtun vegna þess sem ráðið telur vera ólögmæta ríkisaðstoð sem veitt hefur verið í tengslum við niðurgreiðslur til húsnæðisfélaga á vegum þriðja aðila.

Umsvifamikil þríþætt meðgjöf

Í kvörtuninni er rakið hvernig stjórnvöld veita umræddum húsnæðisfélögum þríþætta fjárhagslega meðgjöf: úthlutunum lóða á undirverði, beinum fjárframlögum í gegnum svokölluð stofnframlög, og niðurgreiddum fasteignalánum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Samanlagt jafngildir meðgjöfin 46% niðurgreiðslu stofnkostnaði nýrra íbúða samkvæmt áætlun Viðskiptaráðs.

Þær íbúðir sem byggðar eru með þessum hætti eru síðan leigðar út af húsnæðisfélögunum á lægra verði en tíðkast á almennum markaði. Íbúðunum er einungis úthlutað til þeirra umsækjenda sem eru í aðild að þeim félögum sem reka þau húsnæðisfélög sem um ræðir, í flestum tilfellum verkalýðsfélög, og þannig ekki aðgengilegar öllum almenningi.

Umsvif þessarar aðstoðar eru veruleg, en nú þegar hafa 1.600 íbúðir verið byggðar af húsnæðisfélögum á vegum þriðja aðila. Af 9.250 íbúðum sem áformað er að rísi í Reykjavík á næstu árum eiga 3.070 íbúðir að vera byggðar af húsnæðisfélögum eða þriðjungur nýrra íbúða í Reykjavík. Áformaðar niðurgreiðslur ríkis og sveitarfélaga nema 64 mö. kr., sem jafngildir 21 m.kr. á hverja nýja íbúð.

Fyrirkomulag sem grefur undan samkeppni

Að mati Viðskiptaráðs grefur framangreint fyrirkomulag undan samkeppni og jafnræði milli þeirra sem starfa á húsnæðismarkaði, bæði innanlands og gagnvart aðilum frá öðrum EES-ríkjum. Þá er almannaeigum veitt í lokuð úrræði á vegum þriðja aðila.

Ráðið telur að þetta fyrirkomulag uppfylli öll skilyrði 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins um ólögmæta ríkisaðstoð: að hún sé veitt með opinberum fjármunum, veiti tilteknum aðilum fjárhagslegt forskot, sé sértæk og valdi röskun á samkeppni og geti haft áhrif á viðskipti innan EES svæðisins. Þá sé hún hvorki réttlætanleg á grundvelli 2. né 3. mgr. sömu greinar um lögmætar undanþágur eða á grundvelli annarra undanþága sem heimilar eru. Því beri að líta á aðstoðina sem ólögmæta ríkisaðstoð sem samrýmist ekki EES samningnum.

Þrátt fyrir að þessum húsnæðisúrræðum sé að nafninu til ætlað að styðja við tekjulága hópa, telur Viðskiptaráð að fyrirkomulagið standist ekki skilyrði þeirra undanþága sem heimilar eru samkvæmt 59. gr. EES-samningsins um þjónustu í almannaþágu. Bæði skortir formlegt umboð til viðtakenda og skýra afmörkun á markhópnum sem þjónustan á að ná til.

Viðskiptaráð beinir til ESA að hefja rannsókn á málinu og beita þeim úrræðum sem stofnuninni eru fær gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Í kvörtuninni er jafnframt vísað til úttektar Viðskiptaráðs á húsnæðisstefnu stjórnvalda, Steypt í skakkt mót, þar sem fjallað er nánar um þetta fyrirkomulag.

Umfjöllun í fjölmiðlum

Tengt efni

Hlutverk hins opinbera þarfnist stöðugrar endurskoðunar

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar stöðumat og valkosti fyrir stefnu um opinbera þjónustu. Ráðið telur að stöðug endurskoðun þurfi að eiga sér stað …
19. nóvember 2025

Færa á námsmannaleyfi til samræmis við Norðurlönd

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi sem felur í sér einföldun á afgreiðslu atvinnuleyfa og breytingar á reglum um dvalarleyfi …
5. nóvember 2025

Kíkt í húsnæði­s­pakkann

„Húsnæðisvandinn verður ekki leystur með auknum opinberum afskiptum, heldur af þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem mynda húsnæðismarkaðinn – fái þau …
4. nóvember 2025

Tímabær hækkun veltumarka en frekari úrbóta þörf

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um áformaðar breytingar á samkeppnislögum sem nú eru til meðferðar í ráðuneytinu. Áformin lúta einkum að málsmeðferð …
22. september 2025

ESA skoðar óhagnaðardrifin húsnæðisfélög

Eftirlitsstofnun EFTA hefur ákveðið að taka til skoðunar hvort húsnæðisstuðningur ríkis og sveitarfélaga til svokallaðra óhagnaðardrifinna …
21. ágúst 2025

Opið hús fyrir út­valda

„Stjórnvöld hafa komið á fót tvískiptu kerfi. Opinberir fjármunir eru nýttir til að byggja eignir sem aðeins þeir sem greiða í ákveðin stéttarfélög fá …
23. apríl 2025