Viðskiptaráð Íslands

Fjármagnstekjuskattur tekur stóran hluta raunávöxtunar

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, var meðal frummælenda á morgunverðarfundi Samtaka sparifjáreigenda um skattlagningu sparnaðar. Í erindi sínu sýndi hann að raunveruleg skattbyrði sparnaðar er langt umfram 22% skatthlutfallið.

Ragnar Sigurður Kristjánsson flytur erindi á morgunverðarfundi Samtaka sparifjáreigenda

Samtök sparifjáreigenda héldu opinn morgunverðarfund á Hótel Reykjavík Öskju miðvikudaginn 28. október undir yfirskriftinni „Skattur á sparnað – margvísleg skattlagning sparnaðar“. Auk Ragnars voru Gylfi Zoëga, prófessor, og Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður, frummælendur.

Erindi Ragnars bar heitið Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt. Þar benti hann á að skatturinn leggst á nafnávöxtun en ekki raunávöxtun, og því eru verðbætur, sem einungis viðhalda kaupmætti sparnaðarins, skattlagðar sem tekjur. Aðeins þegar engin verðbólga er stenst að skatturinn sé í 22% af raunávöxtun. Miðað við 3% raunávöxtun hefur skatturinn tekið að meðaltali 55% af raunávöxtun frá árinu 2018, en það hlutfall fór upp í 85% árið 2022 og 88% árið 2023.

Í norrænum samanburði er Ísland með lægsta skatthlutfallið en næsthæstu skattbyrðina, þar sem verðbólga hefur verið meiri hér en í nágrannalöndunum. Þá ber arður samanlagt 37,6% skatt þegar tekjuskattur fyrirtækja er tekinn með, og við núverandi verðbólgu getur skatturinn numið meira en allri raunávöxtuninni.

„Af þessu er ljóst að talan 22% gefur ekki rétta mynd af skattlagningu á sparnað,“ sagði Ragnar. Hann benti jafnframt á að fjármagn sé kvikur skattstofn og að hærri skattur geti dregið úr sparnaði, fjárfestingu og stofnun fyrirtækja. Slík umgjörð er ekki til þess fallin að byggja upp öflugra hagkerfi til lengri tíma litið.

Tengt efni

Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt

„Vísað var til þess að fjármagnstekjuskattur væri aðeins 22%, mun lægri en skattur á launatekjur. Sú skattprósenta segir þó aðeins hálfa söguna. Til …
12. október 2026

Einfalda megi skattkerfið

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fullyrti að einfalda mætti skattkerfið og boðaði breytingar til einföldunar á Skattadeginum sem …
16. janúar 2026

Verðbólgan heimatilbúinn vandi

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var gestur í Spursmálum á dögunum. Í þættinum var farið m.a. farið yfir stöðu …
20. janúar 2026

Aðgát skal höfð í nærveru fjármagns: Erindi á Skattadegi 2025

Hugmyndaríkt fólk þarf aðgang að fjármagni, svo það geti hrint hugmyndum sínum í framkvæmd. Flest lönd leitast við laða til sín öflugan mannauð og …
16. janúar 2025

Sanngjarnt og einfalt skattkerfi er hagkvæmara

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þreytti frumraun sína á Skattadeginum sem fram fór í dag. Fjallað var um skatta á breiðum …
14. janúar 2025

Viljandi misskilningur

Hvort er hærra, skattur á launatekjur eða fjármagn?
6. september 2022