Yfir 10.000 manns hafa tekið kosningapróf Viðskiptaráðs. Afnám stimpilgjalds við fasteignakaup, aukin orkuöflun, áframhaldandi innflutningur jarðefnaeldsneytisbíla og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mesta stuðnings þátttakenda. Mikil andstaða er við sölu á hlut í Landsvirkjun.
Afnám stimpilgjalds við fasteignakaup, aukin orkuöflun, áframhaldandi innflutningur jarðefnaeldsneytisbíla og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mesta stuðnings þátttakenda í kosningaprófi Viðskiptaráðs 2024. Yfir 10.000 manns hafa nú tekið kosningaprófið, þar sem afstaða er tekin til 60 spurninga um margvísleg málefni.
Tíu vinsælustu málin
Mestur stuðningur var við afnám stimpilgjalds við kaup á fasteignum. Stimpilgjöld eru enda úrelt skattheimta sem dregur úr veltu á fasteignamarkaði og velferð með því að hindra viðskipti á milli aðila. [1] Sé miðað við niðurstöður Kosningaáttavita Viðskiptaráðs, þar sem öll stjórnmálaframboð á landsvísu voru spurð sömu spurninga og í kosningaprófinu, gæti afnám þess raungerst á næsta kjörtímabili, en sjö framboð eru fylgjandi afnámi og tvö hlutlaus.
Önnur mál sem nutu stuðnings meirihluta þátttakenda voru aukin orkuöflun í jarðvarma og vatnsafli, en 81% voru fylgjandi þeirri spurningu á meðan 6% voru andvíg. Þá eru flestir fylgjandi áframhaldandi innflutningi bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Fjórða vinsælasta málið var samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu og það fimmta að ríkið semji við einkaaðila jafnt sem opinbera um annars stigs heilbrigðisþjónustu, t.d. ákveðnar skurðaðgerðir.
Sala á hlut í Landsvirkjun óvinsælust
Önnur mál hlutu hins vegar dræmari hljómgrunn meðal þátttakenda. Þar sker sig sérstaklega úr spurning um sölu á hlut í Landsvirkjun, en 83% voru andvíg því á meðan 8% voru fylgjandi. Niðurstaðan var ekki jafn afgerandi fyrir aðrar spurningar á lista yfir þær sem minnstra vinsælda nutu. Þar má nefna takmarkaðan stuðning við að draga úr lögverndun starfa og starfsheita. [2]
Einnig má merkja nokkurn stuðning við gjaldfrjálsar skólamáltíðir auk þess sem ríflega helmingur svarenda er andvígur sölu á hlutum í Keflavíkurflugvelli og/eða Landsbankanum. Þá njóta íbúðir í skammtímaleigu og kaupaukagreiðslur fjármálafyrirtækja ekki mikils stuðnings meðal þátttakenda í kosningaprófinu.
Stuðningur við meirihluta mála
Heilt yfir sýna niðurstöður kosningaprófsins að meirihluti þátttakenda er fylgjandi tugum góðra mála sem eru til þess fallin að auka hagsæld hér á landi. Vert er að taka fram að svör þátttakenda kosningaprófsins þurfa ekki að endurspegla afstöðu allra kjósenda. Engu að síður gefa niðurstöðurnar vísbendingu um afstöðu kjósenda til þessara mála.
Að mati Viðskiptaráðs gefa niðurstöður kosningaprófsins tilefni til bjartsýni varðandi mörg þjóðþrifamál sem breið samstaða gæti náðst um. Það er von ráðsins að mörg þeirra verði að veruleika á næsta kjörtímabili.
Niðurstöður kosningaprófsins í heild sinni eru nú öllum aðgengilegar hér að neðan.
--
--
Tilvísanir
1 Sjá nánari umfjöllun í úttekt Viðskiptaráðs (2015): „Leyndir gallar fasteignagjalda.“ Slóð: https://vi.is/skodanir/leyndir-gallar-fasteignagjalda
2 Sjá úttekt Viðskiptaráðs (2015): „Banvænn biti? Lögverndun á íslenskum vinnumarkaði.“ Slóð: https://vi.is/skodanir/banvaenn-biti