Viðskiptaráð Íslands

Tækifæri í rusli

Markmið sorpþjónustu á að vera að tryggja íbúum góða þjónustu með sem skilvirkustum hætti. Til þess þarf gagnsæi, samanburð og virkari samkeppni. Umræðan á að snúast um bætta þjónustu sveitarfélaga og hvernig best sé hægt að nýta fjármuni heimila og sveitarfélaga en ekki varðstöðu um opinbera einokun.

Sorpþjónusta hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með auknum kröfum um flokkun úrgangs og tækniframförum sem skapa tækifæri til að auka hagkvæmni. Sum sveitarfélög hafa nýtt þessi tækifæri með því að virkja krafta samkeppni á meðan önnur halda þjónustunni í óbreyttri mynd með umfangsmiklum opinberum rekstri. Afleiðingin er hærri kostnaður og lakari þjónusta.

Kostnaður vegna sorpþjónustu hefur tvöfaldast umfram verðlag síðustu ár og vaxið mun meira en aðrir liðir tengdir rekstri heimila eins og húshitun, fráveita og vatn. Frá gildistöku nýrra laga um meðhöndlun úrgangs árið 2021 hafa gjöldin hækkað um nærri 50% að raunvirði. Þetta eru hækkanir sem heimili finna fyrir.

Samkeppni lækkar kostnað

Viðbrögð skrifstofustjóra skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg vegna úttektar Viðskiptaráðs á sorpþjónustu eru athyglisverð. Skrifstofustjórinn fullyrðir að fákeppni ríki í sorphirðu og því sé óskynsamlegt að bjóða út þjónustuna. En réttari lýsing á stöðunni fyrir heimili í Reykjavík er einokun, enda samkeppnin engin. Önnur stór sveitarfélög hafa virkjað krafta samkeppninnar og þar virðist sem bæði hagkvæmni hafi aukist og þjónusta batnað.

Akureyri er þar gott dæmi. Þegar bæjarfélagið bauð út sorphirðu í fyrsta sinn árið 2010 var tilboð Gámaþjónustu Norðurlands 54% undir kostnaðarmati bæjarins og útvistunin sparaði sveitarfélaginu um 700 milljónir króna á 8 árum. Með því að skipta þjónustu upp í fleiri útboð og afmarka verkefni betur er hægt að skapa virkari samkeppni og opna markaðinn fyrir fleiri aðilum.

Skýring skrifstofustjórans um að kerfisbreytingar Akureyrarbæjar hafi ráðið kostnaðarlækkuninni en ekki útvistun þjónustunnar stenst illa, því kostnaðarmat bæjarins var miðað við útvistun. Tilboð einkaaðilans var því lægra en kostnaðarmat bæjarins miðað við nýtt fyrirkomulag og útvistun.

Að bera saman epli og epli

Skrifstofustjórinn heldur því einnig fram að samanburður Viðskiptaráðs sé villandi og að þjónustan í Reykjavík sé bæði hagkvæm og íbúar séu ánægðir. Greining ráðsins byggði hins vegar á opnum og samanburðarhæfum gögnum þar sem miðað var við heimili með tvær tvískiptar tunnur ásamt föstu gjaldi vegna grenndargáma.

Í greininni er jafnframt fullyrt að "raunkostnaður" í Reykjavík sé um 60.800 krónur á heimili með tilliti til grenndar- og endurvinnslustöðva. Sá kostnaður er ekki settur fram með sambærilegum hætti gagnvart öðrum sveitarfélögum, sem gerir samanburð ómögulegan. Í opinberum rekstri getur kostnaður einnig komið fram í formi taprekstrar sem lendir á útsvarsgreiðendum, en í útboðum er heildarkostnaður þjónustunnar bæði sýnilegur og fastsettur í samningi.

Útboð skila árangri

Auk lægri kostnaðar skilar aukin samkeppni betri þjónustu. Niðurstöður könnunar meðal sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins sýna að ánægja með tæmingu sorptunna er mest í þeim sveitarfélögum sem hafa virkjað krafta samkeppni með því að bjóða út þjónustuna.

Reykjavíkurborg sker sig úr í þessum hópi að því leyti að þar er sorphirða ekki boðin út, en þar telja íbúar tæmingu sorps ganga verst. Á sama tíma hafa ítrekað komið upp fréttir af töfum, fullum tunnum og þjónustuvandamálum í borginni.

Engin samkeppni í sorpmóttöku

Þegar horft er einu skrefi lengra í sorpþjónustu, frá sorphirðu til sorpmóttöku, birtist önnur mynd. Á höfuðborgarsvæðinu er engin samkeppni í sorpmóttöku þar sem sveitarfélögin sinna verkefninu sameiginlega í gegnum Sorpu án útboðs. Sorpa hefur því 100% markaðshlutdeild í móttöku heimilisúrgangs á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar einn opinber aðili er ráðandi á markaðnum verða hvatar til hagræðingar og þjónustubóta veikari. Í dag er um 90% af starfsemi Sorpu á samkeppnismörkuðum — í flestum tilfellum í beinni samkeppni við innlenda einkaaðila.

Núverandi fyrirkomulag í Reykjavík er hið áhættusama, þar sem rekstrartengd áhætta hvílir á útsvarsgreiðendum. Greinileg tækifæri eru til þess að endurskoða reksturinn og takmarka störf Sorpu við stjórnsýslu, útboð og eftirlit en samkeppnisrekstur verði alfarið boðinn út eða seldur.

Markmið sorpþjónustu á að vera að tryggja íbúum góða þjónustu með sem skilvirkustum hætti. Til þess þarf gagnsæi, samanburð og virkari samkeppni. Umræðan á að snúast um bætta þjónustu sveitarfélaga og hvernig best sé hægt að nýta fjármuni heimila og sveitarfélaga en ekki varðstöðu um opinbera einokun.

Höfundur er lögfræðingur Viðskiptaráðs.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is, 13. maí 2026.

Tengt efni

Tómar tunnur: umbætur í sorpþjónustu

Á Íslandi eru víða tækifæri til að auka samkeppni í sorpþjónustu heimila. Á stórum hluta markaðarins fer starfsemi fram án útboðs, sem getur leitt til …
7. maí 2026

Útvistun eftirlits fylgi fækkun heilbrigðisnefnda

Viðskiptaráð telur frumvarp um fækkun heilbrigðisnefnda mikilvægt skref í átt að einfaldara og skilvirkara eftirliti. Þó gagnrýnir ráðið frávik frá …
20. apríl 2026

Fremst í yfir­byggingu

Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs fjallar um yfirbyggingu Reykjavíkurborgar og hvernig umfangsmikið stjórnsýslustig sveitarfélaga …
30. mars 2026

Einfalda þarf stjórnsýslu sveitarfélaga

Viðskiptaráð leggur til að einfalda þarf stjórnsýslu sveitarfélaga og draga úr kostnaði sem fylgir umfangsmikilli yfirbyggingu. Afnema ætti kvaðir um …
23. mars 2026

Hlutverk hins opinbera þarfnist stöðugrar endurskoðunar

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar stöðumat og valkosti fyrir stefnu um opinbera þjónustu. Ráðið telur að stöðug endurskoðun þurfi að eiga sér stað …
19. nóvember 2025

Steinar í götu samrunaaðila

„Virk samkeppni er forsenda framleiðni- og hagvaxtar, en reglur sem eiga að tryggja hana mega ekki verða of íþyngjandi. Samkeppnislög þurfa að stuðla …
23. október 2025