Viðskiptaráð Íslands

Óbirt vinnuskjal

Þetta efni hefur ekki verið birt og er vinnuskjal. Vinsamlegast deildu því ekki, vitnaðu ekki í það og gættu trúnaðar um efni þess.

Ísland getur margfaldað raforkuframleiðsluna

Kortlagðir virkjunarkostir á Íslandi gætu margfaldað raforkuframleiðslu landsins, en framleiðslan hefur staðið í stað frá 2017. Engin rík þjóð notar litla orku og eftirspurn eftir hreinni og stöðugri orku vex hratt. Viðskiptaráð leggur til að raforkuframleiðslan verði tvöfölduð fyrir 2040.

Samantekt

  • Rammaáætlun hefur kortlagt 148 óbyggða virkjunarkosti með samanlagða orkugetu upp á um 85 teravattstundir á ári, meira en fjórfalda raforkuframleiðslu landsins. Kostir í orkunýtingar- og biðflokki einir og sér nægja nær til að tvöfalda hana.
  • Engin rík þjóð notar litla orku. Íslendingar framleiða mest rafmagn á mann í heiminum, en framleiðslan hefur staðið í stað frá 2017 og raforka á mann dregist saman um 14% frá 2015.
  • Kína hefur nær áttfaldað raforkuframleiðslu sína frá aldamótum og stórnotendur í Evrópu greiða margfalt hærra verð en hér. Eftirspurn eftir hreinni og stöðugri orku vex, meðal annars vegna orkuskipta og gagnavera.
  • Tvöföldun fyrir 2040 kallar á um 1.900 milljarða króna fjárfestingu sem ætti ekki að koma úr ríkissjóði. Sölutekjur af nýju orkunni yrðu um 142 milljarðar á ári, meira en allt framlag ríkisins til Landspítala.
  • Viðskiptaráð leggur til að tvöföldun verði opinbert markmið, rammaáætlun afnumin, leyfisferli einfaldað, flutningskerfið byggt á undan eftirspurn og orkan seld á opnum markaði.

Ísland býr yfir meiri ónýttri orku en flestir gera sér grein fyrir. Á kortinu eru allir 148 óbyggðir virkjunarkostir sem metnir hafa verið í rammaáætlun, auk 49 virkjana sem þegar eru í rekstri. Samanlögð orkugeta kostanna er um 85 teravattstundir á ári, en öll raforkuframleiðsla landsins var 18,8 teravattstundir árið 2025. Væru allir kostirnir nýttir yrði framleiðslan því um fimmföld.[1][2]

Ekki kæmi til greina að nýta alla kostina. Um fjórðungur orkugetunnar er í verndarflokki eða á friðuðum svæðum, sumir kostir útiloka hver annan og orkugetan er hönnunartala, ekki trygg orka. En jafnvel þótt einungis sé horft til þeirra kosta sem Alþingi hefur þegar sett í orkunýtingar- eða biðflokk er svigrúmið gríðarlegt. Í orkunýtingarflokki eru 21 kostur. Vaðölduver hóf rekstur í september og Hvammsvirkjun er í byggingu, en hinir 19, með um 9,9 teravattstundir á ári, hafa ekki verið hafnir og sumir legið þar frá 2013. Í biðflokki eru 17 kostir til viðbótar með um 8,2 teravattstundir. Þessir kostir einir og sér gætu nær tvöfaldað raforkuframleiðsluna. Þá eru ótaldar 37 vindorkuhugmyndir með um 19 teravattstundir sem bíða mats.[1][3] Þá lúta 14 kostir með um 12 teravattstundir á ári nú reglum biðflokks, en svæði þeirra voru friðlýst gegn orkuvinnslu 2019 til 2021 og friðlýsingarnar afturkallaðar 2024 eftir að Hæstiréttur taldi þær ólögmætar.[4]

Auðlindin er því ekki takmarkandi þáttur. Það er ákvörðunin um að nýta hana.

Engin rík þjóð notar litla orku

Samhengið milli orku og lífskjara er eitt það skýrasta sem hagtölur heimsins sýna. Af 50 ríkjum þar sem landsframleiðsla á mann er yfir 40 þúsund dölum nota öll meiri orku á mann en heimsmiðgildið, og ekkert land sem notar minna en 10 þúsund kílóvattstundir á mann hefur náð 28 þúsund dölum.[5] Viðskiptaráð hefur ítrekað bent á að hvergi fyrirfinnist ríki sem býr við góð lífskjör og litla orkunotkun.[6]

Rétt er að halda til haga að ríkustu þjóðirnar hafa vaxið síðustu tvo áratugi þótt orkunotkun á mann hafi dregist saman, meðal annars vegna betri nýtni og þess að orkufrekur iðnaður hefur flust til Asíu. Orka er forsenda hagsældar en tryggir hana ekki ein og sér. Fyrir Ísland er samhengið þó sérstaklega beint: orkan hefur verið undirstaða útflutnings í meira en hálfa öld og ál eitt og sér er um sjötti hluti alls útflutnings vöru og þjónustu.[7]

Kyrrstaða í áratug

Íslendingar framleiða mest rafmagn á mann í heiminum, 48 megavattstundir árið 2024, nær fjórum sinnum meira en Bandaríkjamenn og átta sinnum meira en íbúar ESB.[5] En framleiðslan hefur staðið í stað í um 19 til 20 teravattstundum frá 2017 og raforka á mann hefur dregist saman um 14% frá 2015 á meðan landsmönnum hefur fjölgað.[8]

Afleiðingarnar eru þegar komnar fram. Veturinn 2023 til 2024 þurfti Landsvirkjun að skerða afhendingu um tæpar 500 gígavattstundir.[9] Landsnet hafnaði yfir hundrað beiðnum um tengingu á árunum 2018 til 2021, um helmingi þeirra frá stórnotendum, og segir flutningskerfið nú „víðast hvar uppselt“.[6][10] Fyrirtæki sem vilja kaupa orku hér á landi fá hana ekki.

Ástæðan er ekki skortur á virkjunarkostum heldur ferli sem tekur áratugi. Hvammsvirkjun í Þjórsá var fyrst skoðuð um aldamótin og sett í orkunýtingarflokk árið 2015. Virkjunarleyfi hennar var fellt úr gildi í tvígang og Alþingi þurfti að breyta lögum árið 2025 til að framkvæmdir gætu haldið áfram. Gangsetning er áformuð árið 2030, nærri þrjátíu árum eftir að hún var fyrst skoðuð.[11] Níu og hálft ár liðu milli annars og þriðja áfanga rammaáætlunar og ráðherra orkumála benti sjálfur á það í febrúar að á tíu árum hefði aðeins ein vatnsaflsvirkjun ratað í orkunýtingarflokk.[12]

Stjórnvöld eiga hrós skilið fyrir að hafa hreyft við málinu á þessu ári. Ný lög um rammaáætlun setja tímafresti, fimm nýir kostir, samtals um tvær teravattstundir, voru færðir í orkunýtingarflokk og fyrsta stóra vindorkuver landsins, Vaðölduver, hóf framleiðslu í september.[12] En tvær teravattstundir eru um tíundi hluti af þeim kostum sem bíða í orkunýtingar- og biðflokki, og flokkun í orkunýtingarflokk er aðeins fyrsta skrefið af mörgum, eins og saga Hvammsvirkjunar sýnir.

Aðrir byggja

Á meðan Ísland stendur í stað byggja aðrir. Frá aldamótum hefur raforkuframleiðsla í Kína nær áttfaldast og á síðustu tíu árum bættu Kínverjar við meiri framleiðslu en öll framleiðsla Bandaríkjanna er í dag. Framleiðslan í Bandaríkjunum hefur aukist um 19% á sama tíma og í Evrópusambandinu um 6%.[13]

Afleiðingin sést í verðinu. Evrópskir stórnotendur greiða að jafnaði um 126 dali á megavattstund, þýsk fyrirtæki 149 og írsk nærri 200, á meðan meðalverð Landsvirkjunar til stórnotenda var 31 dalur árið 2025.[14][15] Íslenska verðið er þó ekki sambærilegt að öllu leyti: það er án flutnings og endurspeglar að mestu gamla samninga og afskrifaðar virkjanir. Samkeppnisforskotið er engu að síður verulegt, og það er einmitt forskot sem nýtist aðeins ef orkan er til.

Eftirspurnin vex

Eftirspurn eftir hreinni og stöðugri orku vex úr mörgum áttum. Í grænbók stjórnvalda um orkumál frá 2022 kalla full orkuskipti ásamt spáðum vexti stórnotenda á um 23,7 teravattstundir til viðbótar fyrir 2040, meira en tvöföldun framleiðslunnar.[16] Landeldi, rafeldsneyti og matvælaframleiðsla kalla öll á orku.

Nýjasti vaxtarbroddurinn eru gagnaver. Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) metur að raforkunotkun gagnavera í heiminum hafi aukist um 17% árið 2025 og spáir að hún tvöfaldist fyrir 2030. Fjórir stærstu tæknirisarnir áforma fjárfestingar upp á um 670 milljarða dala á þessu ári, ríflega þrefalt meira en árið 2024.[17][18] Eitt gervigreindarver með gígavatts afli notar um 7,9 teravattstundir á ári, um 40% af allri raforkuframleiðslu Íslands.[19] Vestanhafs bíða ný orkuver um fimm ár eftir tengingu við flutningskerfið.[20] Sá sem getur boðið stöðugt og kolefnislaust afl hratt hefur eitthvað sem heimurinn vantar.

Ný orka á nýju verði

Hér verður að tala skýrt: ný orka er dýrari en sú gamla. Kárahnjúkavirkjun kostaði um 28 milljónir króna á hverja gígavattstund í árlegri framleiðslu á verðlagi 2007. Fjárfestingaráætlun Landsvirkjunar fyrir 2026 til 2030 hljóðar upp á 157 milljarða króna fyrir um 1.400 gígavattstundir, eða um 112 milljónir á gígavattstund.[21][22] Útreikningar Viðskiptaráðs benda til þess að ný vatnsafls- og jarðvarmaorka þurfi að seljast á um 47 til 86 dali á megavattstund til að standa undir sér. Á núverandi meðalverði til stórnotenda, 31 dal, borgar ný virkjun sig ekki.

Kaupendur sem þurfa stöðuga og hreina orku geta hins vegar greitt slíkt verð. Í gagnaverum er raforka aðeins um 5 til 11% af árlegum kostnaði samkvæmt útreikningum Viðskiptaráðs, og vatnsafl og jarðvarmi skila stöðugu afli án geymslu, ólíkt sól og vindi, sem kosta 87 til 158 dali á megavattstund þegar kostnaður við jöfnun er talinn með.[23] Íslensk orka seld á 60 til 75 dali yrði því bæði ódýrari en það sem stórnotendur greiða að jafnaði í Evrópu og Bandaríkjunum og arðbær fyrir þann sem byggir.

Vindur og vatn vinna saman. Vindorka er ódýrasti kosturinn á hverja framleidda kílóvattstund en hún er óstöðug. Miðlunarlón geta hins vegar virkað sem risavaxnar rafhlöður: þegar vindur blæs er vatni haldið eftir í lónunum og það nýtt þegar lygnir. Vindorkuver við miðlunarlón, eins og Vaðölduver við Þjórsá, auka því stöðuga afkastagetu kerfisins án þess að reisa þurfi nýjar stíflur.

Áætlun um tvöföldun

Tvöföldun raforkuframleiðslu fyrir 2040 kallar á um 20 teravattstundir til viðbótar, eða um 2,5 gígavött af stöðugu afli. Það er metnaðarfullt en ekki fordæmalaust: Kárahnjúkavirkjun ein og sér jók framleiðsluna um 4,8 teravattstundir og frá 2000 til 2010 ríflega tvöfaldaðist raforkuframleiðsla landsins.[13] Áætlunin byggir fyrst á þeim kostum sem Alþingi hefur þegar sett í orkunýtingarflokk, síðan á helmingi biðflokksins og loks á vindorku við miðlunarlón.

Miðað við kostnað nýlegra og fyrirhugaðra virkjana nemur fjárfestingin um 1.900 milljörðum króna á fimmtán árum, eða um 125 milljörðum á ári. Eftir forsendum getur hún legið á bilinu 1.500 til 2.500 milljarðar. Við bætist styrking flutningskerfisins umfram þá 160 milljarða sem Landsnet áformar næsta áratuginn.[10] Árleg fjárfesting upp á 125 milljarða samsvarar um 2,5% af landsframleiðslu. Hún á hvorki að koma úr ríkissjóði né að ganga fyrir sig með ríkisábyrgðum. Langtímasamningar við trausta kaupendur eru veðhæfir og innlendir lífeyrissjóðir, erlendir innviðasjóðir og kaupendurnir sjálfir hafa bæði burði og áhuga á að fjármagna slíka uppbyggingu, eins og eignarhald HS Orku ber vitni um.

Hvað fær þjóðin í sinn hlut?

Landsvirkjun sýnir hvernig orkuauðlindin skilar sér þegar fjárfestingin er greidd niður. Fyrirtækið greiddi ríkinu 1,5 milljarða króna í arð á ári fram til 2018. Eftir að skuldir lækkuðu og samningar voru endurnýjaðir hefur arðurinn numið 20 til 30 milljörðum á ári og samtals 110 milljörðum frá 2022 til 2026.[15] Að tekjuskatti meðtöldum fékk ríkið að jafnaði um 38 milljarða króna á ári frá Landsvirkjun á árunum 2023 til 2025.

Eitt gígavatt af nýju afli, selt á 60 dali á megavattstund, skilar um 57 milljörðum króna í sölutekjur á ári, álíka miklu og öllu framlagi ríkisins til framhaldsskólastigsins. Tvöföldun framleiðslunnar skilaði um 142 milljörðum, meiru en nemur framlaginu til Landspítala.[24] Við það bætast skatttekjur af starfsemi kaupendanna, laun og innlend aðföng. Álverin keyptu innlendar vörur og þjónustu, laun og raforku fyrir um 137 milljarða króna á ári.[25] Rétt er þó að gæta hófs í mati á afleiddum áhrifum: við fulla atvinnu verða störfin að hluta til á kostnað annarra.

Tillögur Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð leggur ekki til að orka verði frátekin fyrir tilteknar atvinnugreinar. Ráðið hefur lagst gegn slíkri forgangsröðun og gerir það áfram.[26] Verkefnið er að auka framboðið svo að allir sem vilja kaupa orku á markaðsverði geti fengið hana.

1. Tvöföldun raforkuframleiðslu fyrir 2040 verði opinbert markmið. Stjórnvöld marki stefnu um 40 teravattstunda framleiðslu árið 2040 og mæli árangur árlega.

2. Lög um rammaáætlun verði afnumin. Orkuvinnsla lúti sömu almennu reglum og önnur atvinnustarfsemi, með umhverfismati, skipulagi og náttúruvernd, og aðeins allra stærstu virkjanir þurfi samþykki Alþingis.[27] Kortlagningin sem þegar liggur fyrir nýtist áfram sem upplýsingagrunnur.

3. Eitt leyfisferli með bindandi tímafrestum. Einn leyfisveitandi, ein gagnagátt og lögbundnir frestir, þannig að mál gangi sjálfkrafa áfram ef stjórnvald afgreiðir það ekki í tæka tíð. Kæruaðild verði takmörkuð við þá sem eiga beinna og verulegra hagsmuna að gæta.[28]

4. Flutningskerfið verði byggt á undan eftirspurninni. Landsnet fái heimild til að reisa línur með tilliti til þeirrar framleiðslu og notkunar sem stefnt er að, og lögfest verði þolskylda landeigenda gegn fullum bótum.[28]

5. Vindorka við miðlunarlón fái forgang í leyfisferli. Vindorkuver á röskuðum svæðum við núverandi virkjanir nýta flutningskerfi og miðlun sem þegar er til staðar. Sveitarfélög fái skipulagsvald og hlutdeild í tekjum.

6. Opinn markaður og einkafjármagn. Ný orka verði seld á markaðsverði sem ber fjárfestinguna, hömlur á erlenda fjárfestingu í orkuvinnslu rýmkaðar og fleiri aðilar fái að byggja og keppa.[6]

Tilvísanir

[1] Alþingi, Þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða (3. áfangi, 2022, með breytingum 2026): althingi.is.

[2] Raforkueftirlitið, Uppsett rafafl og raforkuframleiðsla í virkjunum á Íslandi 2025 (2026): orkustofnun.is.

[3] Verkefnisstjórn rammaáætlunar, Lokaskýrsla 5. áfanga (2025): ramma.is.

[4] Stjórnarráðið, Friðlýsingar afturkallaðar vegna dóms Hæstaréttar (3. desember 2024): stjornarradid.is.

[5] Our World in Data, Energy use per person og GDP per capita (2026): ourworldindata.org.

[6] Viðskiptaráð Íslands, Orkulaus/nir: skýrsla Viðskiptaþings 2023: vi.is.

[7] Hagstofa Íslands, Útflutningur vöru og þjónustu: hagstofa.is.

[8] Ember, Yearly Electricity Data (2026): ember-energy.org.

[9] Landsvirkjun, Curtailment continues due to abysmal water year (11. apríl 2024) og ársskýrsla 2024: landsvirkjun.com.

[10] Landsnet, Kerfisáætlun 2025–2034: langtímaáætlun: orkustofnun.is.

[11] Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, mál 3/2023, og lög nr. 42/2025: althingi.is.

[12] Stjórnarráðið, Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun samþykktar í orkunýtingarflokk (17. febrúar 2026) og Þrjár virkjanir samþykktar í orkunýtingarflokk (16. júní 2026): stjornarradid.is.

[13] Ember, Yearly Electricity Data, framleiðsla eftir löndum (2026): ember-energy.org.

[14] Eurostat, Electricity prices for non-household consumers (nrg_pc_205): ec.europa.eu.

[15] Landsvirkjun, Ársreikningur 2025: landsvirkjun.com.

[16] Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Staða og áskoranir í orkumálum (grænbók, 2022): stjornarradid.is.

[17] IEA, Data centre electricity use surged in 2025 (16. apríl 2026): iea.org.

[18] IEA, Key Questions on Energy and AI (2026) og uppgjör Microsoft, Alphabet, Amazon og Meta: iea.org.

[19] IEA, Energy and AI (2025): iea.org.

[20] Lawrence Berkeley National Laboratory, Queued Up: 2026 Edition: emp.lbl.gov.

[21] Alþingi, þingskjal 751 á 135. löggjafarþingi (Kárahnjúkavirkjun): althingi.is.

[22] Landsvirkjun, Fjárfestingaráætlun 2026–2030, erindi til Alþingis: althingi.is.

[23] Lazard, Levelized Cost of Energy+ (2026): lazard.com.

[24] Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Fjárlagafrumvarp 2027: stjornarradid.is.

[25] Samál, Lykiltölur áliðnaðarins: samal.is.

[26] Viðskiptaráð Íslands, Raforkuöryggi verður aðeins tryggt með aukinni framleiðslu (2025): vi.is.

[27] Viðskiptaráð Íslands, Rammaáætlun hindrun í nauðsynlegri orkuöflun (2025): vi.is.

[28] Viðskiptaráð Íslands, Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu (2026): vi.is.

Tengt efni

Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá …
31. mars 2026

Rammaáætlun hindrun í nauðsynlegri orkuöflun

Rammaáætlun hefur hvorki leitt til aukins gagnsæis né sáttar í samfélaginu um orkunýtingu. Þvert á móti hefur kerfið skapað óvissu, tafir og hindranir …
25. nóvember 2025

Raforkuöryggi verður aðeins tryggt með aukinni framleiðslu og uppbyggingu

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarp til breytinga á raforkulögum sem er ætlað að auka raforkuöryggi og veita heimilum og almennum …
21. mars 2025

Rammáætlun taki mið af áskorunum í orkumálum.

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um þingsályktunartillögu um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Viðskiptaráð …
20. mars 2025

Stærsti óvissuþáttur rammáætlunar stendur óhaggaður

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun sem hafði það að markmiði að tryggja skilvirka og …
3. febrúar 2025

10 vindorkukostir: Allir orkukostir í biðflokk

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög verkefnastjórnar rammaáætlunar að flokkun tíu vindorkukosta. Ráðið ítrekar enn og aftur þá afstöðu sína að …
13. janúar 2025