Viðskiptaráð Íslands

Getur ríkið reddað ódýru húsnæði?

Kynning Björns Brynjúlfs Björnssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs, frá fræðslufundi VÍB er nú aðgengileg.

Kynninguna má nálgast hér

Í erindi sínu fjallaði Björn um þróun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og aðkomu stjórnvalda að fasteignamarkaðnum hérlendis.

Björn sagði íbúa höfuðborgarsvæðisins hvorki eiga erfitt með íbúðakaup samanborið við fyrri tíma né miðað við íbúa annarra Norðurlanda. Þá sagði hann stefnu stjórnvalda vera bæði óskýra og ómarkvissa sem leiði til laks árangurs af þeim stuðningskerfum sem þau starfrækja á húsnæðismarkaði. Loks hvatti hann stjórnvöld til að afmarka betur núverandi stuðningskerfi ásamt því að grípa til aðgerða til að auka framboð nýs húsnæðis, til dæmis með auknum lóðaúthlutunum, einföldun regluverks og bættri hagstjórn.

Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.

Tengt efni

Björn Brynjúlfur gestur í Þjóðmálum

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs var gestur í hlaðvarpinu Þjóðmálum 1. maí sl.
4. maí 2026

Verðbólgan heimatilbúinn vandi

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var gestur í Spursmálum á dögunum. Í þættinum var farið m.a. farið yfir stöðu …
20. janúar 2026

Getur ríkið reddað ódýru húsnæði?

Á opnum morgunfundi VÍB verður fjallað um það hvernig stjórnvöld geta brugðist við miklum hækkunum á húsnæðisverði. Björn Brynjúlfur Björnsson, …
10. mars 2016

Upptaka frá fundi um húsnæðismarkaðinn

Upptaka frá fræðslufundi VÍB um húsnæðismarkaðinn er nú aðgengileg á vefnum. Á fundinum flutti Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, …
11. mars 2016

Stefna og framtíðarsýn í ferðaþjónustu

Kynning Björns Brynjúlfs Björnssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs, frá fundi um stefnu og framtíðarsýn í íslenskri ferðaþjónustu, er nú aðgengileg hér á …
25. febrúar 2015

Íslenska skattkerfið: áhrif á hegðun og lífskjör

Kynning Björns Brynjúlfs Björnssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs Íslands, á fræðslufundi VÍB um breytt skattaumhverfi fjallar um áhrif skatta á hegðun …
12. mars 2015