Viðskiptaráð Íslands

200 skattahækkanir síðan 2007

Um síðustu áramót gerðu stjórnvöld 22 breytingar á íslensku skattkerfi. 19 þeirra fólu í sér skattahækkanir en aðeins í þremur tilvikum voru skattar lækkaðir. Frá árinu 2007 hafa því alls verið gerðar 267 breytingar á íslensku skattkerfi eða að meðaltali 24 á ári. Af 267 breytingum hafa 200 verið til hækkunar en 67 til lækkunar.

Skoða yfirlit

Fjármagnstekjuskattur hefur hækkað um 120%

Fyrir hverja skattalækkun frá árinu 2007 hafa skattar því verið hækkaðir þrisvar sinnum. Eftirfarandi hækkanir eru dæmi um skattbreytingar sem gerðar hafa verið á tímabilinu:

  • Fjármagnstekjuskattur hefur hækkað um 120%
  • Hækkun gjalda á bjór, létt- og sterkt vín er á bilinu 104-108%
  • Tryggingagjald er enn 28% hærra en það var fyrir hrun
  • Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra hefur hækkað um 77%

Vinsælt að lofa lækkunum en auðvelt að hækka

Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar sem birtur var síðasta haust mæltist nokkuð vel fyrir enda var í honum að finna jákvæðar áherslur í ólíkum málefnum ríkisstjórnarinnar, þar á meðal skattamálum. Ágætlega var fjallað um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar í skattamálum en úr sáttmálanum mátti lesa fyrirheit um sjö ólíkar skattalækkanir á móti tveimur til hækkunar.

Þegar nýtt fjárlagafrumvarp var birt nú um síðustu áramót kom þó í ljós að staðið var við báðar breytingarnar sem boðaðar höfðu verið til hækkunar en einungis eina af sjö til lækkunar. Það er því ljóst að stjórnvöld eiga ekki í neinum vandræðum með að standa við fyrirheit um skattahækkanir, en þegar kemur að skattalækkunum er einhver tregða til staðar. Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld að standa við fögur fyrirheit og ráðast í mikilvægar skattalækkanir, svo sem lækkun tryggingagjalds, endurskoðun á skattstofni fjármagnstekjuskatts, afnámi þaks á endurgreiðslur rannsókna- og þróunarkostnaðar og lækkun á neðra þrepi tekjuskatts.


Í yfirliti Viðskiptaráðs var í fyrsta skiptið tekið tillit til breytinga á frítekjumarki atvinnutekna aldraðra í ár. Breytingar á frítekjumarkinu á síðustu 10 árum voru færðar inn í yfirlitið.


Tengt efni

Grunnskólamál: hvað segja tölurnar?

Grunnskólakennurum hefur fjölgað hraðar en nemendum undanfarin ár. Þá er …
21. október 2024

Hvað er í fjárlagapakkanum?

Fjárlagafrumvarp ársins 2025 var lagt fram á dögunum. Samkvæmt því verða útgjöld …
27. september 2024

Meiriháttar munur á færni eftir grunnskóla

Meiriháttar munur var á færni barna eftir grunnskóla árið 2012. Þetta sýna …
13. ágúst 2024