Viðskiptaráð tekur undir markmið frumvarpsdraga um að færa eftirlit með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til Fjarskiptastofu. Ráðið telur þó ekki nægilega sýnt fram á að stofnunin geti tekið við verulega auknum verkefnum, án aukinna útgjalda, án þess að það komi niður á öðrum lögbundnum verkefnum hennar.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind frumvarpsdrög. Megintilefni frumvarpsins er að færa eftirlit með framkvæmd laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða frá embætti landlæknis, Samgöngustofu og Umhverfis- og orkustofnun til Fjarskiptastofu.
Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að skort hafi á fullnægjandi framkvæmd eftirlits samkvæmt gildandi fyrirkomulagi, meðal annars vegna skorts á sérþekkingu og erfiðleika við að manna og fjármagna nauðsynleg stöðugildi. Með samþjöppun eftirlits hjá Fjarskiptastofu er stefnt að betri nýtingu sérþekkingar og samræmdari framkvæmd.
Viðskiptaráð tekur undir markmið um að samþætta eftirlit, nýta betur sérþekkingu og einfalda stjórnsýslu. Ráðið hefur áður lagt áherslu á fækkun og sameiningu eftirlitsstofnana og meðal annars lagt til að Fjarskiptastofa, Neytendastofa og Samkeppniseftirlitið verði sameinuð í eina stofnun. Sú nálgun byggir á því að samþjöppun verkefna geti dregið úr skörun, aukið sérhæfingu og skapað samlegð og skilvirkni í opinberu eftirliti.[1]
Verði frumvarpið að lögum munu eftirlitsverkefni Fjarskiptastofu þó aukast verulega. Í greinargerð með frumvarpsdrögunum segir að breytingarnar feli í sér talsvert aukið umfang eftirlitsverkefna og mikla áskorun og kröfu um forgangsröðun verkefna. Þrátt fyrir það er ekki gert ráð fyrir auknum útgjöldum ríkissjóðs.
Á þingmálaskrá er jafnframt boðað frumvarp um sameiningu stofnana og verkefna á sviði viðskipta-, samkeppnis- og neytendamála í nýja sameinaða stofnun. Mikilvægt er að þær breytingar sem hér eru lagðar til séu skoðaðar í samhengi við þá vinnu og komi ekki í veg fyrir eða torveldi frekari sameiningu stofnana og verkefna. Jafnframt þarf að gæta þess að við tilfærslu verkefna verði ekki byggt upp óþarflega umfangsmikið eða tvíverkandi eftirlitskerfi. Markmiðið ætti að vera skýr verkaskipting, betri nýting sérþekkingar og einfaldari stjórnsýsla.
Í greinargerð frumvarpsins er byggt á því að samþjöppun eftirlits leiði til umtalsverðrar hagræðingar og aukinnar skilvirkni. Viðskiptaráð telur líklegt að slík samþjöppun geti skapað samlegð og aukið skilvirkni. Ekki verður þó séð að lagt hafi verið mat á umfang hennar eða hvernig hún muni gera Fjarskiptastofu kleift að taka við auknum verkefnum án þess að það hafi áhrif á önnur lögbundin verkefni stofnunarinnar.
Í því samhengi er ástæða til að taka fram að Fjarskiptastofa sinnir nú þegar umfangsmiklum lögbundnum verkefnum, sem þegar hefur reynst áskorun að sinna innan lögbundinna tímamarka. Ráðið hefur m.a. vakið athygli á töfum við endurskoðun markaðsgreininga á fjarskiptamarkaði, sem geta leitt til þess að kvaðir á fyrirtæki haldist í gildi án þess að forsendur þeirra séu endurmetnar með reglubundnum hætti. Í því ljósi er að mati ráðsins ekki nægilega sýnt fram á að Fjarskiptastofa hafi svigrúm til að taka við verulega auknum verkefnum án þess að það komi niður á öðrum lögbundnum verkefnum hennar.
Viðskiptaráð telur því mikilvægt að gerð verði skýrari grein fyrir áætluðum samlegðaráhrifum breytinganna og getu Fjarskiptastofu til að taka við þeim auknu verkefnum sem lagt er til með frumvarpinu. Tryggja þarf að samþjöppun eftirlits leiði til raunverulegrar hagræðingar og skilvirkni en ekki þess að önnur lögbundin verkefni stofnunarinnar sitji á hakanum.
[1] Sjá úttekt Viðskiptaráðs „Réttum kúrsinn: Umbætur í opinberu eftirliti“ (2024). https://vi.is/skodanir/rettum-kursinn