Viðskiptaráð Íslands

Fjárlagafrumvarp 2027: 46 tillögur að aukinni hagræðingu

Viðskiptaráð fagnar því að gert sé ráð fyrir 5 ma. kr. afgangi af rekstri ríkissjóðs árið 2027 en bendir á að rúmlega helmingur sértækra útgjaldaráðstafana byggir á nýtingu uppsafnaðra fjárheimilda og að frumvarpið boðar skattahækkanir upp á rúma 34 ma. kr. á breiðum grunni. Ráðið leggur fram 46 tillögur að hagræðingu í ríkisrekstri sem gætu skilað 110 ma. kr. til lengri tíma litið.

Samantekt

  • Viðskiptaráð fagnar því að gert sé ráð fyrir 5 ma. kr. afgangi af rekstri ríkissjóðs, þar sem að viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs er ósjálfbær þróun.
  • Rúmlega helmingur sértækra útgjaldaráðstafana byggir á nýtingu uppsafnaðra fjárheimilda, sem felur ekki í sér raunverulega hagræðingu heldur frestar útgjöldum sem munu falla til síðar.
  • Frumvarpið boðar skattahækkanir upp á rúma 34 ma. kr. á breiðum grunni, meðal annars á banka, ökutæki og baðlón, sem munu auka verðbólguþrýsting, veikja samkeppnisstöðu og leggjast að endingu á heimili og fyrirtæki.
  • Þrátt fyrir hallaleysi er hreinn lánsfjárjöfnuður neikvæður um 67 ma. kr., níunda árið í röð, og skuldasöfnun ríkissjóðs heldur því áfram með tilheyrandi vexti vaxtagjalda, sem eru nú orðin næststærsti útgjaldaliður ríkisins.
  • Útgjöld til almannatrygginga munu hafa aukist um 50 ma. kr. að raunvirði árið 2027 frá árinu 2024. Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að grípa til aðgerða til að sporna gegn þessari ósjálfbæru útgjaldaaukningu.
  • Viðskiptaráð leggur fram 46 tillögur að hagræðingu í ríkisrekstri sem gætu skilað 110 ma. kr. til lengri tíma litið, þar af 19 ma. kr. strax á næsta ári.

Hallaleysi jákvætt skref

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með 5 ma. kr. afgangi. Verði frumvarpið afgreitt með afgangi verður það í fyrsta sinn frá árinu 2018 sem ríkissjóður er rekinn með afgangi. Það yrði mjög jákvætt skref fyrir ríkissjóð og hagkerfið í heild, þar sem að viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs er ósjálfbær þróun, skapar aukinn verðbólguþrýsting í hagkerfinu og hamlar lækkun stýrivaxta.

Í framlögðu fjárlagafrumvarpi er bæði áformað að draga úr útgjöldum og að hækka skatta. Boðaðar eru ráðstafanir sem eiga að draga úr útgjöldum um rúma 44 ma. kr. Þá eru jafnframt boðaðar skattahækkanir sem eiga að skila ríkissjóði rúmum 34 ma. kr. í auknar tekjur.

Nýting uppsafnaðra fjárheimilda felur ekki í sér varanlega hagræðingu

Þeim útgjaldaráðstöfunum sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu má skipta í þrennt. Í fyrsta lagi er áætlað að almennar aðhaldsaðgerðir muni skila 4,7 ma. kr. sparnaði fyrir ríkissjóð. Í öðru lagi er fyrirhugað að fækka stöðugildum hjá ríkinu um 1%, sem jafngildir um 200 stöðugildum og á að skila sparnaði sem nemur 3,2 ma. kr. Í þriðja lagi eru sérstakar útgjaldaráðstafanir boðaðar sem áætlað er að hafi í för með sér um 36,2 ma. kr. sparnað fyrir ríkissjóð. Í ljósi þess að sértæku útgjaldaráðstafanirnar nema um 82% af fyrirhugaðri hagræðingu verða þær teknar til sérstakrar umfjöllunar hér.

Viðskiptaráð gerir athugasemd við framsetningu hluta aðgerðanna sem hagræðingaraðgerða. Rúmlega helmingur þeirra hagræðingaraðgerða sem áformaðar eru undir liðnum sértækar útgjaldaráðstafanir byggja á nýtingu uppsafnaðra fjárheimilda (mynd 1). Þar er því ekki um raunverulega hagræðingu að ræða, þar sem að nýting uppsafnaðra fjárheimilda mun hvorki draga úr umfangi ríkisins í hagkerfinu á næsta ári né tryggja samdrátt í útgjöldum til lengri tíma litið. Þvert á móti getur samdráttur í veitingu fjárheimilda í ár til fjárfestingaverkefna sem hafa að einhverju leyti fyrirsjáanlega fjárþörf, líkt og t.d. nýi Landsspítalinn, kallað á aukin útgjöld í framtíðinni.

Þetta er viðurkennt í frumvarpinu þar sem eftirfarandi kemur fram: „Þessar ráðstafanir geta kallað á auknar fjárheimildir síðar eftir því sem verkefnum vindur fram sem gert er ráð fyrir að verði mætt á seinni hluta fjármálaáætlunar.“

Jafnframt mun nýting uppsafnaðra fjárheimilda ekki draga úr eftirspurnarþrýstingi vegna umsvifa ríkisins, sé það markmiðið með hagræðingu hins opinbera, þar sem að aðgerðin breytir í raun ekki útgjöldum í fjárfestingar ríkisins.

Viðskiptaráð fagnar því að í hagræðingaráformunum sé sérstaklega horft til endurhæfingarlífeyris. Frá árinu 2000 hefur hlutfall einstaklinga sem þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri farið úr 6,5% af einstaklingum á vinnualdri í 10,4% árið 2025. Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur eru jafnan fyrstu greiðslurnar sem einstaklingar fá úr kerfinu, svo sá greiðsluflokkur er ákjósanleg leið að því að koma í veg fyrir frekari útgjaldavöxt innan kerfisins. Viðskiptaráð kallar þó eftir því að útfærsla liggi fyrir á hvernig eigi að ná fram hagræðingu í málaflokknum.

Viðskiptaráð fagnar því jafnframt að áformað sé að skera niður styrki til orkuskipta um 3,2 ma. kr. á komandi ári. Ísland er þegar með eina hæstu hlutdeild rafmagnsbíla, þegar horft er til nýrra seldra bíla[1] og rafbílar eru orðnir samkeppnishæfur kostur, bæði þegar horft er til innviða og rekstrarkostnaðar. Jafnframt hefur úttekt Hagfræðistofnunar á efnahagslegum áhrifum af stuðningi stjórnvalda við rafbílakaup metið stuðninginn neikvæðan um 39 ma. kr.[2] Því hvetur ráðið stjórnvöld til að afnema styrkina varanlega og tryggja þar með að þessum fjármunum verði betur varið.

Þá er einnig jákvætt að ríkið afnemi vaxtabótakerfið að fullu. Alþjóðagjaldeyris­sjóðurinn hefur bent á að ákjósanlegt væri að draga úr stuðningnum í ljósi þess að hann vinnur gegn eigin markmiðum þar sem vaxtabætur hvetja til skuldsetningar og hafa áhrif til hækkunar á húsnæðisverð.[3]

Skattahækkanir á breiðum grunni

Frumvarpið felur í sér umfangsmiklar breytingar á sköttum og opinberum gjöldum. Samkvæmt áætlunum stjórnvalda nema fyrirhugaðar skattahækkanir samtals rúmlega 34 milljörðum króna árið 2027 (mynd 2).

Opinberar gjaldahækkanir auka verðbólguþrýsting

Í frumvarpinu er boðuð 5,2% hækkun á krónutölugjöldum ríkisins í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins um að 12 mánaða breytingu á vísitölu neysluverðs yfir árið 2026 verði 5,2%. Breytingin nær til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, kolefnisgjalds, bifreiðagjalds, gistináttaskatts, innviðagjalds, gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjalds.

Hækkanirnar munu óhjákvæmilega hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs en bein áhrif þeirra eru áætluð 0,28% samkvæmt frumvarpinu. Þá eru ótalin óbein áhrif hækkananna. Hækkun opinberra gjalda leiðir til aukins kostnaðar fyrirtækja, meðal annars vegna hækkunar á aðfangaverði og þjónustu, sem getur skilað sér áfram út í verðlag og þannig aukið verðbólguþrýsting enn frekar.

Verðbólga hefur verið þrálát undanfarin ár og er til mikils að vinna við að koma böndum á hana. Verðbólga skapar óvissu í rekstri ríkis og sveitarfélaga, fyrirtækja og heimila.

Árangur við að draga úr verðbólgu krefst þess að allir armar hagstjórnar vinni að sama markmiði. Hið opinbera, aðilar vinnumarkaðarins og Seðlabankinn þurfa þannig að róa í sömu átt. Opinberar gjaldahækkanir umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans ganga þvert á þau sjónarmið og samræmast illa yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum.

Að framangreindu virtu telur Viðskiptaráð ráðlegt að fallið verði frá boðuðum hækkunum og þess í stað verði hækkun krónutölugjalda miðuð við verðbólgumarkmið Seðlabankans, eða 2,5%.

Frekari sértæk skattlagning á banka

Frumvarpið felur í sér hækkun á sértækum skatti á banka, svonefndum bankaskatti. Skattstofninn er heildarskuldir bankanna umfram 50 milljarða króna. Í frumvarpinu er lagt til að gjaldhlutfall skattsins verði hækkað um 75%, úr 0,145% í 0,254%, og er áætlað að sú hækkun skili ríkissjóði um 6 milljörðum króna í viðbótartekjur.

Viðskiptaráð telur rétt að minna á að fjármálafyrirtæki sæta nú þegar umfangsmikilli sértækri skattlagningu. Auk bankaskatts greiða þau fjársýsluskatt af launagreiðslum og sérstakan viðbótartekjuskatt af hagnaði, auk sérstaks eftirlitsgjalds. Þá eru eiginfjárkröfur bankanna háar, sem leiðir til aukinnar bindingar fjármagns og stuðlar að hærri vaxtamun.

Vert er að benda á að sértækir skattar á íslenska viðskiptabanka eru nú þegar rúmlega fimmfaldir á við það sem tíðkast meðal banka í öðrum ríkjum Vestur-Evrópu. Verði fyrirhuguð hækkun að veruleika verður munurinn sjöfaldur (mynd 3).[4]

Þá er rétt að benda á að sértæk skattlagning af þessu tagi nær aðeins til hluta lánveitenda á húsnæðislánamarkaði. Lífeyrissjóðir bjóða einnig húsnæðislán en bera ekki sambærilegar álögur. Skattbyrðin ræðst þannig ekki af þeirri þjónustu sem veitt er heldur því hver veitir hana. Slíkt skekkir samkeppnisstöðu bankanna gagnvart öðrum lánveitendum á sama markaði.

Viðskiptaráð leggst gegn áformunum enda fela þau í sér verulega aukningu á skattlagningu lánsfjármagns, sem er nú þegar íþyngjandi. Aukin skattbyrði viðskiptabanka skilar sér að endingu til heimila og fyrirtækja í formi lakari lánskjara og lægri innlánsvaxta.

Auknar álögur á ökutæki

Í frumvarpinu er einnig kveðið á um hækkun kílómetragjalds á ökutæki, til viðbótar við 5,2% verðlagsuppfærsluna sem önnur opinber gjöld sæta. Áætlað er að sú viðbótarhækkun umfram verðlagsuppfærsluna skili ríkissjóði um 4 milljörðum króna.

Um áramót 2026 voru gerðar kerfisbreytingar á gjaldtöku af ökutækjum þar sem kílómetragjald var tekið upp samhliða afnámi eldsneytisgjalda. Eigendur bensín- og dísilbíla greiða þó áfram kolefnisgjald af hverjum lítra, en það hækkaði um 30% samhliða upptöku kílómetragjalds. Líkt og áður hefur komið fram í umsögnum Viðskiptaráðs[5] er það mat ráðsins að það sé eðlilegt að þeir sem noti vegakerfið greiði fyrir þau afnot og er ráðið fylgjandi því grunnsjónarmiði að gjaldtaka í vegakerfinu taki mið af notkun þess.

Aftur á móti er ljóst að um verulega hækkun er að ræða. Viðskiptaráð bendir á að kílómetragjald leggst milliliðalaust á akstur og eykur þar með flutningskostnað fyrirtækja, sem skilar sér áfram út í verð vöru og þjónustu um land allt. Á sama tíma og stjórnvöld boða aðgerðir gegn verðbólgu er þessi tiltekna hækkun til þess fallin að auka verðbólguþrýsting.

Hækkun kílómetragjalds verður jafnframt að skoða í samhengi við aðrar álögur á ökutæki. Um áramót voru vörugjöld á bensín- og dísilbíla hækkuð verulega. Hækkunin leiddi til þess að skattar og gjöld á nýja bíla geta nú verið hærri en innflutningsverð þeirra. Heildarskattheimtan á bensínjeppa með losun yfir 207 g/km er nú 111%, en sparneytinn bensínbíll ber 74% heildarskatt og tengiltvinnbíll 61% skatt. Ofan á þær álögur bætast síðan kolefnisgjald af eldsneyti og kílómetragjald vegna aksturs (mynd 4).[6]

Aukin gjaldtaka af ferðaþjónustu skaðar samkeppnisstöðu

Lagt er til að aðgangseyrir að baðhúsum, baðstöðum, gufubaðsstofum og heilsulindum verði fært undir almennt skatthlutfall virðisaukaskatts, þ.e. 24% virðisaukaskatt í stað 11%.

Baðlón eru einn helsti vaxtarsproti íslenskrar ferðaþjónustu og hafa á undanförnum árum orðið að mikilvægara aðdráttarafli fyrir Ísland sem áfangastað. Gögn Ferðamálastofu sýna að ríflega helmingur þeirra sem heimsækja Ísland fara í baðlón.[7] Hækkun á virðisaukaskatti, sem er neysluskattur, mun að endingu koma niður á þeim sem kaupa vöruna eða þjónustuna.

Fyrirsjáanleiki í skatt- og gjaldheimtu skiptir atvinnulífið almennt miklu máli, en það á ekki síst við í ferðaþjónustunni þar sem verðlagning og bókanir eiga sér gjarnan stað langt fram í tímann. Því geta svo umfangsmiklar skattabreytingar með jafn skömmum fyrirvara og boðað er í frumvarpinu skaðað bæði fyrirtækin innan greinarinnar, en ekki síður samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar gagnvart öðrum löndum. Framangreind rök hafa meðal annars verið færð fyrir því að ferða­þjónustan og aðgangur að stöðum sem hafa sérstakt aðdráttarafl, líkt og baðlón, falli undir lægra virðisaukaskattþrep.[8]

Þá er boðuð sérstök gjaldtaka af ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar, en markmiðið með gjaldtökunni er að stuðla að jafnari dreifingu og tryggja réttlát auðlindagjöld. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum á að innheimta gjald af ferðamannastöðum á „Gullna hringnum“, þ.e. Þingvöllum, Gullfossi og Geysi.

Viðskiptaráð gerir athugasemd við skamman fyrirvara á þessari gjaldtöku, en gert er ráð fyrir að gjaldtakan hefjist 1. maí 2027. Ljóst er að ferðaþjónustufyrirtæki hafa þegar hafið sölu á ferðum fyrir næsta ár og því ómögulegt taka tillit til skattsins við verðlagninguna.

Þá er Ísland þegar dýr áfangastaður í alþjóðlegum samanburði. Fyrirhuguð hækkun skattheimtu á baðlón og upptaka náttúru- og innviðagjalds myndi auka enn frekar kostnað við ferðalög til landsins og veikja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Viðskiptaráð leggur því til að fallið verði frá aukinni gjaldtöku.

Lægra framleiðniviðmið eykur skattbyrði

Í frumvarpinu er lagt til að framleiðniviðmið við uppfærslu skattleysis- og þrepamarka í tekjuskatti einstaklinga lækki úr 1% í 0% fyrir staðgreiðsluárið 2027 en verði 0,5% næstu fjögur staðgreiðsluár þar á eftir, eða til ársins 2031. Hingað til hafa skattleysis- og þrepamörk hækkað árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs að viðbættu mati á framleiðnivexti sem hefur verið metinn 1%. Reglunni er ætlað að stuðla að því að skattbyrði mismunandi tekjuhópa þróist ekki með ólíkum hætti til lengri tíma litið.

Rökin að baki þessari breytingu eru þau að við mat á framleiðni vinnuafls sé eðlilegra að horfa á framleiðni á hvern starfandi fremur en á framleiðni á hverja vinnustund, þar sem tekjuskatts- og útsvarsstofn miðast við árstekjur einstaklinga fremur en tekjur á vinnustund. Í greinargerð frumvarpsins er breytingin rökstudd með því að framleiðni á hvern starfandi hafi vaxið kerfisbundið hægar en framleiðni á vinnustund undanfarin ár, einkum vegna styttingar vinnutíma.

Viðskiptaráð bendir á að breytingin felur í sér skattahækkun sem birtist ekki með beinum og gagnsæjum hætti. Lægra framleiðniviðmið leiðir til þess að skattleysis- og þrepamörk hækka minna en ella og skattbyrði verður þar með meiri samkvæmt óbreyttri reglu, þar sem stærri hluti tekna launafólks færist í hærra skattþrep. Í stað þess að leggja fram beina breytingu á skatthlutfalli eða þrepamörkum er skattahækkunin fólgin í breytingu á reiknireglunni sem ræður þróun markanna. Viðskiptaráð telur það ganga gegn grunnsjónarmiðum um skýra og gagnsæja skattheimtu.

Að mati Viðskiptaráðs væri nær að bregðast við hægari vexti framleiðni á hvern starfandi með því að falla frá styttingu vinnuvikunnar, fremur en að lækka framleiðniviðmið við uppfærslu skattkerfisins. Með fyrirhugaðri breytingu er hægari framleiðnivöxtur þess í stað látinn leiða til hægari hækkunar skattleysis- og þrepamarka og þar með aukinnar skattbyrði launafólks.

Leyfa ætti forvarnagjaldi að falla niður

Viðskiptaráð leggst jafnframt gegn fyrirhugaðri framlengingu á svokölluðu forvarnagjaldi, sem komið var á til að fjármagna varnir á mikilvægum innviðum vegna eldsumbrota á Reykjanesi. Gjaldinu var ætlað að vera tímabundin aðgerð til þriggja ára til að mæta tímabundnu ástandi. Ekki er tilefni til að framlengja skattinn, heldur ætti hann að renna sitt skeið, líkt og var upphaflega áformað.

Áframhaldandi skuldsetning áhyggjuefni

Þrátt fyrir að hallaleysi sé heillaskref er mikilvægt að stjórnvöld horfi ekki aðeins á afkomu sem mælikvarða á árangur. Hreinn lánsfjárjöfnuður, sem segir til um hvort ríkissjóður þurfi að taka fé að láni eða geti greitt niður skuldir, er áætlaður neikvæður um 67 ma. kr. í frumvarpinu. Það þýðir að þrátt fyrir hallalausan rekstur þarf ríkissjóður áfram að fjármagna sig með lántöku og keppa þannig um lánsfé sem eykur eftirspurnarþrýsting á lánsfjármarkaði og dregur að auki úr aðhaldsáhrifum fjárlagafrumvarpsins.

Árið 2027 verður því níunda árið í röð þar sem hreinn lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs er neikvæður. Afleiðingin af því er að skuldasöfnun ríkissjóðs heldur áfram, en frá árinu 2019 hafa skuldir ríkissjóðs nærri tvöfaldast að raunvirði (mynd 5).

Afleiðingin af áralangri skuldasöfnun er sú að vaxtagjöld ríkissjóðs hafa vaxið verulega og eru orðin næststærsti útgjaldaliðurinn í fjárlagafrumvarpi ársins 2027.

Með jákvæðum lánsfjárjöfnuði mætti hefja niðurgreiðslu skulda og þannig leggja grunn að sjálfbærari ríkisfjármálum og lægri vaxtagjöldum til lengri tíma litið. Í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 er aftur á móti gert ráð fyrir að lánsfjárjöfnuður verði að jafnaði neikvæður um 88 ma. kr. á ári út tímabil áætlunarinnar. Það þýðir að skuldasöfnun mun halda áfram til a.m.k. ársins 2031, með tilheyrandi hækkunum á vaxtagjöldum og þar með minna svigrúmi til skattalækkana eða fjármögnunar á annarri þjónustu ríkisins. Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að hverfa af þessari braut og tryggja jákvæðan hreinan lánsfjárjöfnuð svo stjórnvöld geti hafið niðurgreiðslu skulda og þannig lækkað vaxtagjöld.

Ósjálfbær útgjaldaaukning til almannatrygginga

Viðskiptaráð telur vert að vekja athygli á þeirri miklu útgjaldaaukningu sem orðið hefur innan almannatryggingakerfisins frá því að lög um endurskoðun örorkulífeyriskerfisins tóku gildi í september árið 2025 (mynd 6). Breytingarnar voru gerðar með það að markmiði að einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum og gera það skilvirkara, en samhliða því voru greiðslur hækkaðar og frítekjumörk sameinuð og hækkuð. Þetta hefur gert það að verkum að útgjöld til lífeyristrygginga og bóta samkvæmt lögum um félagslega aðstoð hafa hækkað um 22% frá árinu 2024 eða um 50 ma. kr. að raunvirði.

Við þessar breytingar bætist launavísitölutenging bóta almannatrygginga sem gerir það að verkum að þær hækka um 7,3% árið 2027 í stað 4%, sem hefði verið innan fyrra kerfis. Þau 3,3 prósentustig sem munar jafngilda 9 ma. kr. útgjaldaaukningu, sem annars hefði ekki komið til.

Jafnframt hafa nýlegar breytingar á kerfinu dregið úr hvata til atvinnuþátttöku. Hækkun frítekjumarka, samhliða upptöku hlutaörorkubóta, hefur gert það að verkum að pör með börn og einstæðir foreldrar þurfa að vera með mánaðarlaun yfir meðallaunum til að það borgi sig ekki að vera á hlutaörorkubótum. Svo að örorkubótakerfið þjóni þeim sem hafa skerta starfsgetu sem best er nauðsynlegt að tryggja að það dragi ekki úr hvata til atvinnuþátttöku.[9]

Viðskiptaráð leggur til að fallið verði frá launavísitölutengingunni og breytingin sem gerð var á kerfinu árið 2025 verði rýnd með tilliti til hvata til atvinnuþátttöku. Þörf er á að endurmeta frítekjumörkin, til þess að tryggja að fjárhagslegir hvatar séu rétt stilltir og jafnframt að styrkja hvata til endurmats og endurhæfingar innan kerfisins.

46 tillögur að sjálfbærum ríkisrekstri

Viðskiptaráð leggur til 46 tillögur til hagræðingar í ríkisrekstri sem samanlagt gætu skilað 110 ma. kr. í hagræðingu til lengri tíma litið (mynd 7). Tillögurnar miða að því að skera niður útgjöld, tryggja sjálfbærni ríkisrekstrarins til framtíðar og minnka umfang atvinnurekstrar á vegum hins opinbera. Tillögunum má skipta í tvennt, annars vegar hagræðingu sem hægt er að ráðast í strax og hins vegar tillögur sem taka lengri tíma í framkvæmd, en munu skila hagræði og aukinni skilvirkni til framtíðar. Heildstætt yfirlit yfir tillögurnar má sjá í viðauka I.

Skammtímahagræðing

Þær tillögur sem væri hægt að ráðast í strax gætu skilað hagræðingu sem nemur 19 ma. kr. á næsta ári, en myndu jafnframt skila varanlegum sparnaði í rekstri ríkisins. Þeim tillögum má skipta í þrjá flokka; afnám sértæks stuðnings, niðurlagningu stofnana og aðrar aðgerðir (mynd 8).

Afnám sértæks stuðnings: Viðskiptaráð leggur til 8 tillögur þar sem leggja má af sértækan stuðning ríkisins á einstaka sviðum og mörkuðum, þar sem íhlutun þess veldur skekkju í dreifingu fjármagns eða afskiptin eru óþörf. Þar vegur þyngst aflagning endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, niðurfelling stofnframlaga og að ríkið hætti að veita gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Aðgerðirnar myndu skila rúmlega 17 ma. kr. hagræðingu árlega.

Niðurlagning stofnana: Viðskiptaráð leggur til að Umboðsmaður skuldara, Mannréttindastofnun, Jafnréttisstofa og Fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Ráðið telur að leggja mætti af stærstan hluta þeirra verkefna sem þessar stofnanir sinna og færa það sem eftir stendur í hendur annarra stofnana. Þessar tillögur myndu skila 1 ma. kr. í hagræðingu árlega.

Aðrar tillögur: Viðskiptaráð leggur til endurskoðun á tímabili atvinnuleysisbóta, í samræmi við framlagt frumvarp um styttingu bótatímabilsins, þar sem upphaflega var lagt til að stytta bótatímabilið úr 30 mánuðum í 18, en styttingin endaði í 24 mánuðum í meðförum þingsins. Sú tillaga myndi skila 600 m. kr. í hagræðingu árlega.

Langtímahagræðing

Viðskiptaráð leggur jafnframt til 33 tillögur til að tryggja sjálfbærni ríkisrekstrar til lengri tíma litið, en þær tillögur ættu að skila hagræðingu upp á 92 ma. kr. á ári (mynd 9). Þeim má skipta í þrjá flokka: eignasölu, starfsmannahald ríkisins og stofnanasameiningar.

Eignasala: Viðskiptaráð leggur til að hlutur ríkisins í 15 félögum að andvirði 681 ma. kr. verði seldur. Tillögurnar myndu skila sér í 48 ma. kr. í árlegt hagræði í formi lægri vaxtakostnaðar, að því gefnu að allur ágóði sölunnar færi í uppgreiðslu skulda.

Starfsmannahald: Viðskiptaráð leggur til að vinnutími, veikindaréttur, uppsagnarvernd og orlofsréttur opinberra starfsmanna verði jafnaður við það sem gerist á einkamarkaði. Breytt umgjörð starfsmannahalds hjá hinu opinbera myndi skila 34 ma. kr. í hagræðingu.

Stofnanasameiningar: Viðskiptaráð leggur fram 14 tillögur að stofnanasameiningum sem myndu fækka stofnunum úr 147 í 99. Samanlagt myndi það skila 9,6 ma. kr. í hagræðingu á ári.

Viðskiptaráð hvetur nefndina til að taka mið af ofangreindum sjónarmiðum við afgreiðslu frumvarpsins.

Tilvísanir

[1] Our World in Data. (2026). Tracking global data on electric vehicles. https://ourworldindata.org/electric-car-sales

[2] Hagfræðistofnun. (2022). Áhrif aðgerða í loftslagsmálum Kostnaðar- og ábatamat. https://ioes.hi.is/sites/ioes.hi.is/files/2022-07/A%C3%B0ger%C3%B0aa%CC%81%C3%A6tlun%20skilaeintak%201507_2022.pdf

[3] Viðskiptaráð. (2015). Úttekt AGS áfellisdómur yfir húsnæðisstefnu stjórnvalda. https://vi.is/frettir/uttekt-ags-afellisdomur-yfir-husnaedisstefnu-stjornvalda

[4] KPMG (2026). Sértæk skattlagning banka á Íslandi. https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/6aa80c2db31c212ed0f4cc00_Reynir.pdf

[5] Sjá umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um kílómetragjald (október 2025). https://vi.is/umsagnir/kilometragjald-umsogn

[6] Sjá úttekt Viðskiptaráðs um vörugjöld á innflutta bíla (september 2026). https://vi.is/greining/skatturinn-dyrari-en-nyi-billinn

[7] Ferðamálastofa (2025). Erlendir ferðamenn á Íslandi. https://www.ferdamalastofa.is/is/rannsoknir/ferdavenjur-erlendra-ferdamanna/ferdamenn-a-islandi-2025

[8] Hagrannsóknir sf. (2024). Um áhrif hækkana á hlutfalli virðisaukaskatts á ferðaþjónustugreinar. https://www.ferdamalastofa.is/static/research/files/ahrif-haekkana-a-vsk-hlutfalli-a-ferdathjonustu-mai-2024.pdf

[9] Viðskiptaráð. (2026). Bætur í blindgötu: örorkukerfið og hvatar til vinnu. https://vi.is/skodanir/baetur-i-blindgotu

Viðauki I: Allar tillögur

Skammtímatillögur: 13 tillögur, 18.755 m. kr.

Afnám sértæks stuðnings

  • Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar verði afnumdar (4.763 m. kr.)
  • Stofnframlög verði afnumin (4.500 m. kr.)
  • Gjaldfrjálsar skólamáltíðir verði afnumdar (4.178 m. kr.)
  • Loftslags- og orkusjóður verði skorinn niður (2.053 m. kr.)
  • Stuðningur við einkarekna fjölmiðla verði afnuminn (946 m. kr.)
  • Framlög til stjórnmálasamtaka verði afnumin (614 m. kr.)
  • Heiðurslaun listamanna verði afnumin (83 m. kr.)
  • Ráðstöfunarfé ráðherra verði afnumið (27 m. kr.)

Niðurlagning stofnana

  • Umboðsmaður skuldara verði lagður niður (411 m. kr.)
  • Mannréttindastofnun Íslands verði lögð niður (275 m. kr.)
  • Jafnréttisstofa verði lögð niður (179 m. kr.)
  • Fjölmiðlanefnd verði lögð niður (126 m. kr.)

Annað

  • Atvinnuleysisbætur: stytting bótatímabils atvinnuleysisbóta úr 24 mánuðum í 18 (600 m. kr.)

Langtímatillögur: 33 tillögur, 91.473 m. kr.

Eignasala

  • Landsbankinn: 98,2% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 374,7 ma. kr. (26.230 m. kr.)
  • Landsvirkjun: 25% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 118,2 ma. kr. (8.277 m. kr.)
  • Isavia: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 110,9 ma. kr. (7.766 m. kr.)
  • Happdrætti háskóla Íslands: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 28,6 ma. kr. (2.002 m. kr.)
  • Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 16,3 ma. kr. (1.140 m. kr.)
  • Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 10,4 ma. kr. (729 m. kr.)
  • Leigufélagið Bríet: 90,9% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 6,7 ma. kr. (466 m. kr.)
  • Íslandspóstur ohf.: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 6,6 ma. kr. (461 m. kr.)
  • Harpa: 54% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 5,2 ma. kr. (362 m. kr.)
  • Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 1,0 ma. kr. (73 m. kr.)
  • Endurvinnslan: 17,8% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 884 m. kr. (62 m. kr.)
  • Vigdísarholt ehf.: 100% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 749 m. kr. (52 m. kr.)
  • Sparisjóður austurlands: 49,5% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 450 m. kr. (32 m. kr.)
  • Eignarhaldsfélag suðurnesja: 48,1% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 291 m. kr. (20 m. kr.)
  • Minjavernd: 38,3% eignarhlutur ríkisins verði seldur fyrir um 48 m. kr. (3 m. kr.)

Starfsmannahald

  • Vinnustundir jafnaðar við einkageira: vinnustundir verði jafnaðar við einkageirann og tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar afnumið (19.481 m. kr.)
  • Uppsagnarvernd jöfnuð við einkageira: uppsagnarvernd opinberra starfsmanna færð til jafns við einkageirann með afnámi áminningarskyldu og beitingu stjórnsýslulaga í starfsmannahaldi ríkisins (8.144 m. kr.)
  • Veikindaréttur jafnaður við einkageira: veikindaréttur verði færður niður til jafns við einkageirann (4.916 m. kr.)
  • Orlof jafnað við einkageirann: orlof á opinberum vinnumarkaði verði jafnað við einkageirann í nýráðningum (1.622 m. kr.)

Stofnanasameiningar

  • Háskóli Íslands, Tilraunastöð Háskólans að Keldum, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn sameinist í Háskóli Íslands (3.738 m. kr.)
  • Lögreglustjórinn á Austurlandi, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, Lögreglustjórinn á Suðurlandi, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, Lögreglustjórinn á Vesturlandi, Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum sameinist í Lögreglan (1.448 m. kr.)
  • Gljúfrasteinn - Hús skáldsins, Hljóðbókasafn Íslands, Kvikmyndasafn Íslands, Listasafn Einars Jónssonar, Listasafn Íslands, Miðstöð íslenskra bókmennta, Náttúruminjasafn Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Þjóðskjalasafn Íslands sameinist í Safnastofnun (757 m. kr.)
  • Úrvinnslusjóður, Geislavarnir ríkisins, Náttúrufræðistofnun, Umhverfis- og orkustofnun sameinist í Umhverfis- og auðlindastofnun (689 m. kr.)
  • Íslenski dansflokkurinn, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Þjóðleikhúsið sameinist í Listastofnun Íslands (469 m. kr.)
  • Matís ohf., Hafrannsóknastofnun, Íslenskar orkurannsóknir sameinist í Rannsóknarstofnun auðlinda og matvæla (445 m. kr.)
  • Vinnueftirlit ríkisins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sameinist í Stofnun tæknilegs eftirlits (440 m. kr.)
  • Kosningar, Umboðsmaður barna, Persónuvernd, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, Barna- og fjölskyldustofa, Útlendingastofnun sameinist í Stofnun borgaralegra réttinda (362 m. kr.)
  • Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Minjastofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun sameinist í Náttúru- og minjaverndarstofnun (345 m. kr.)
  • Sjúkratryggingar Íslands, Tryggingastofnun ríkisins sameinist í Sjúkra- og tryggingastofnun Íslands (316 m. kr.)
  • Hagstofa Íslands, Þjóðskrá Íslands sameinist í Hagstofa Íslands (241 m. kr.)
  • Rannsóknamiðstöð Íslands, Byggðastofnun, Ferðamálastofa sameinist í Atvinnuþróunarstofnun (194 m. kr.)
  • Fjarskiptastofa, Neytendastofa, Samkeppniseftirlitið sameinist í Samkeppnis- og neytendastofu (125 m. kr.)
  • Sjónstöðin, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sameinist í Heyrna-, tal- og sjónmeinastöð Íslands (64 m. kr.)

Samtals allar tillögur: 46 tillögur, 110.228 m. kr.

Hagræðing er árleg áhrif á afkomu ríkissjóðs. Áhrif eignasölu eru metin sem árlegur vaxtasparnaður miðað við 7% vexti, arðgreiðslur eru ekki dregnar frá.

Tengt efni

Ekki er allur afgangur eins

„Ríkisstjórnin ætti því að draga úr fyrirhuguðum skattahækkunum og leggja þess í stað meiri áherslu á að fylgja hagræðingarverkefni sínu eftir. Nú …
24. september 2026

Hvert fara skattpeningarnir 2027?

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 var lagt fram á dögunum. Útgjöld ríkissjóðs verða 1.704 milljarðar króna á næsta ári og aukast um 83 milljarða milli …
21. september 2026

Er ný fjármálaáætlun á áætlun?

Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs, fjallar um nýsamþykkta fjármálaáætlun og hvers vegna markmiðið um hallalaus …
18. júní 2026

Ganga mætti lengra í fækkun starfsmanna og hagræðingu

Viðskiptaráð fagnar áformum um fækkun ríkisstarfsmanna og sameiningu stofnana en telur að ganga mætti enn lengra. Ráðið hvetur stjórnvöld til að skoða …
7. maí 2026

Átta skattahækkanir á næsta ári

Þrátt fyrir að skattheimta á Íslandi sé há í alþjóðlegum samanburði nema fyrirhugaðar skattahækkanir næsta árs 25 milljörðum króna. Þetta kemur fram í …
28. nóvember 2025

Loka ætti fjárlagagatinu og hætta skuldasöfnun

Í fjárlögum fyrir árið 2026 er áformað ríkissjóður verði rekinn með 15 ma.kr. halla og að hreinn lánsfjárjöfnuður verði neikvæður um 70 ma.kr. …
7. október 2025