Viðskiptaráð styður frumvarp sem heimilar sölu lausasölulyfja utan lyfjabúða og telur það auka samkeppni, bæta aðgengi neytenda og styrkja verslun á landsbyggðinni. Ráðið leggur jafnframt til að mönnunarkröfur lyfjabúða og verðstýring lyfseðilsskyldra lyfja verði endurskoðaðar.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til breytinga á lyfjalögum, nr. 100/2020 (lausasala lyfja), 190. mál á 158. löggjafarþingi. Með frumvarpinu er lagt til að sala lausasölulyfja utan lyfjabúða verði heimiluð, óháð því hvort lyfjabúð eða lyfjaútibú sé starfrækt í nágrenninu. Að mati ráðsins er breytingin til þess fallin að auka samkeppni á lyfjamarkaði, bæta aðgengi neytenda og stuðla að hagkvæmari dreifingu lyfja.
Viðskiptaráð hefur áður talað fyrir rýmri heimildum til sölu lausasölulyfja í almennum verslunum.[1] Í umsögnum hefur ráðið þannig sérstaklega lagt til að kannað yrði hvort heimila ætti slíka sölu, meðal annars með hliðsjón af fyrirkomulagi í nágrannalöndunum, og bent á að aukin samkeppni sé til þess fallin að stuðla að lægra verði og bættri þjónustu, auk þess sem rýmri söluheimildir myndu auðvelda neytendum að nálgast algeng lausasölulyf.
Núgildandi fyrirkomulag takmarkar að meginstefnu sölu lausasölulyfja við lyfjabúðir, þrátt fyrir að neytendum sé heimilt að kaupa lyfin án lyfseðils. Slíkar takmarkanir draga úr samkeppni og valfrelsi neytenda og geta haft áhrif á verð og aðgengi. Með því að heimila sölu lausasölulyfja í almennum verslunum fjölgar mögulegum söluaðilum og neytendur fá aukið svigrúm til að velja hvar og hvenær þeir kaupa lyf. Breytingin getur jafnframt haft sérstaka þýðingu á landsbyggðinni, þar sem aðgengi að lyfjabúðum er víða takmarkað. Rýmri söluheimildir geta bætt þjónustu við íbúa og styrkt rekstrargrundvöll almennra verslana í minni byggðarlögum.
Viðskiptaráð telur jafnframt mikilvægt að takmarkanir á atvinnufrelsi og samkeppni gangi ekki lengra en nauðsynlegt er til að vernda lögmæta almannahagsmuni. Þótt ríkar ástæður séu til að gera sérstakar kröfur til sölu lyfja verður að gæta meðalhófs við útfærslu þeirra. Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hefur um árabil verið heimilt að selja tiltekin lausasölulyf utan lyfjabúða, með skilyrðum um meðal annars geymslu, afgreiðslu og hvaða lyf megi selja. Sú framkvæmd sýnir að unnt er að samræma aukið aðgengi neytenda og kröfur um öryggi þeirra. Við nánari útfærslu frumvarpsins er mikilvægt að horft verði til þessarar reynslu og þess gætt að reglusetning og eftirlit skapi ekki óþarfa kostnað eða hindranir fyrir nýja söluaðila.
Samhliða því að rýmka heimildir til sölu lausasölulyfja telur Viðskiptaráð mikilvægt að endurskoða þær kvaðir sem hvíla á starfandi apótekum. Markmiðið ætti að vera að skapa samkeppnishæft og skilvirkt rekstrarumhverfi þar sem kröfur til fyrirtækja ganga ekki lengra en nauðsynlegt er til að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar. Í því sambandi telur ráðið sérstaklega ástæðu til að endurskoða lögbundnar mönnunarkröfur lyfjabúða. Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga er að jafnaði gerð krafa um að tveir lyfjafræðingar séu að störfum í lyfjabúð á almennum afgreiðslutíma og á álagstíma utan hans, þótt heimilt sé að veita undanþágur við tilteknar aðstæður. Slík meginregla takmarkar svigrúm lyfjabúða til að haga mönnun eftir umfangi starfseminnar og raunverulegri þörf og getur verið sérstaklega íþyngjandi fyrir minni apótek og lyfjabúðir á landsbyggðinni. Viðskiptaráð telur rétt að endurskoða þessa kröfu og miða mönnun þess í stað við umfang starfseminnar og áhættu, að því gefnu að öryggi og gæði lyfjaþjónustu séu tryggð.
Þá telur ráðið tilefni til að endurskoða fyrirkomulag verðlagningar lyfseðilsskyldra lyfja. Samkvæmt 66. gr. lyfjalaga ákveður Lyfjastofnun hámarksverð þeirra í smásölu, þar á meðal smásöluálagningu lyfjabúða. Fyrirkomulagið takmarkar svigrúm lyfjabúða til að bregðast við breytingum á rekstrarkostnaði og dregur úr fyrirsjáanleika í rekstri. Mikilvægt er að endurskoða þessa verðstýringu með það að markmiði að auka svigrúm til samkeppni og tryggja að rekstrarumhverfi apóteka sé bæði gagnsætt og fyrirsjáanlegt.
1 Sjá umsögn Viðskiptaráðs um tillögu til þingsályktunar um lyfjastefnu (2017). Slóð: https://vi.is/umsagnir/aeskilegt-ad-kanna-moguleikann-a-lausasolulyfjum-i-almennum-verslunum