Viðskiptaráð Íslands

Tímabundinn trúnaður (e. embargo)

Þetta efni verður birt þann 27. mars kl. 09:00 og þá hverfur þessi viðvörun. Fram að þeim tíma biðjum við þig um að greina ekki frá því opinberlega.

Eflum samkeppni - aukum skilvirkni

Morgunfundur um hvernig efla megi samkeppni og auka skilvirkni á Íslandi. Fundurinn fer fram 27. mars næstkomandi, frá 08:30 til 12:00, á Hilton Reykjavík Nordica.

Hvernig er hægt að efla samkeppni og auka skilvirkni? Um þetta verður rætt á fundi á Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, fimmtudaginn 27. mars. Fundurinn er á vegum Háskólans í Reykjavík, í samstarfi við SA, SAF, SAMORKU, SFF, SFS, SI, SVÞ og Viðskiptaráð. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra flytur opnunarávarp.

Framsögumenn verða:

  • Antoine Winckler
    Yfirráðgjafi hjá Cleary Gottlieb Steen & Hamilton
    EU merger control, a procedural analysis: what works and what doesn‘t?
  • Katie Curry
    Hagfræðingur / meðeigandi hjá RBB Economics
    Merger control and international competitiveness: conflicting priorities?
  • Heimir Örn Herbertsson
    Sérfræðingur í samkeppnisrétti við Háskólann í Reykjavík og hæstaréttarlögmaður
    Merger control enforcement in Iceland – the eye of the needle?

Að erindum loknum verða pallborðsumræður framsögumanna ásamt Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Fundarstjórn og stjórn pallborðsumræðna verður í höndum Ásu S. Hallsdóttur, yfirlögfræðings samkeppnismála hjá Volvo í Svíþjóð.

Húsið opnar kl. 8:30 þar sem boðið verður upp á morgunmat fyrir alla fundargesti. Dagskráin hefst svo stundvíslega kl. 9 og lýkur kl. 12.

Hlekk á skráningu má nálgast hér.

Tengt efni

Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti …
13. febrúar 2025

Kosningafundur 2024

Kosningafundur Viðskiptaráðs verður haldinn í Hörpu miðvikudaginn 13. nóvember …
13. nóvember 2024

Samkeppnishæfni Íslands 2024

Morgunfundur um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í …
20. júní 2024