Viðskiptaráð Íslands

ÞÍV: Hátíðarsamkoma

Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð kl. 17:00 laugardaginn 26. nóvember kl. 17.00 en tréð er staðsett á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Þetta er í 52. skiptið sem góðir vinir í Hamborg senda jólatré til Reykjavíkurhafnar en fyrsta tréð kom árið 1965.

Við athöfnina munu fulltrúar frá Hamborg flytja stutt ávarp um leið og þeir afhenda gjöfina. Björn Blöndal, varaformaður Faxaflóahafna sf., þakkar fyrir jólatréð fyrir hönd Faxaflóahafna. Staðgengill sendiherra Þýskalands á Íslandi, Diane Röhrig, ávarpar gesti við tréð ásamt Dr. Sverrir Schopka, fulltrúa Þýsk-Íslenska félagsins í Þýskalandi. Að athöfn lokinni er gestum boðið í heitt súkkulaði og viðeigandi bakkelsi í Hafnarhúsinu. Félagar úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar leika jólalög.

Þessi fallegi siður, að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar, er tileinkaður íslenskum togarasjómönnum sem sigldu á Hamborg með fisk strax eftir seinni heimstyrjöldina. Þess er sérstaklega minnst að sjómennirnir gáfu svöngu og ráðlausu fólki á hafnarsvæðinu fiskisúpu á meðan verið var að landa úr togaranum.

Á hverju ári síðan árið 1965 hefur Eimskipafélag Íslands flutt tréð endurgjaldslaust til Reykjavikur og í ár er það fyrirtækið Buss Port í Hamburg sem einnig styrkir þetta framtak. Faxaflóahafnir ásamt Þýsk-Íslenska Viðskiptaráðinu hafa staðið fyrir skipulagningu að móttöku trésins.

Sjá viðburð á Facebook

Tengt efni

Opnunartími milli jóla og nýárs

Lokað verður á skrifstofu Viðskiptaráðs á aðfangadag og á gamlársdag.
22. desember 2025

Kraftmikill fundur um samrunaeftirlit

Viðskiptaráð stóð fyrir opnum fundi um samrunaeftirlit á Vinnustofu Kjarval síðastliðinn þriðjudag. Áhugaverðar umræður voru í pallborði um nýja …
16. október 2025

Afsakið hlé: Umhverfi fjölmiðla á Íslandi

Viðskiptaráð kynnir nýja úttekt á umhverfi fjölmiðla á Íslandi miðvikudaginn 5. mars á Vinnustofu Kjarval, á 2. hæð. Helga Arnardóttir, Kolbeinn Tumi …
5. mars 2025

Sjáðu upptöku frá Kosningafundi Viðskiptaráðs

Kosningafundur Viðskiptaráðs fór fram í Hörpu í dag, miðvikudaginn 13. nóvember. Beint streymi var frá fundinum og hófst útsending kl. 9.00.
13. nóvember 2024

Horfum til hagsældar: opinn kosningafundur með leiðtogum stjórnmálaflokka

Viðskiptaráð efnir til kosningafundar í Hörpu miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „Horfum til hagsældar.“ Þar munu leiðtogar …
28. október 2024

Viðskiptaþing 2024

Viðskiptaþing 2024 fer fram 8. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. 13:00.
8. febrúar 2024