Viðskiptaráð Íslands

Almenningur, starfsmenn og stjórnendur ríkisins hlynntir afnámi áminningarskyldu

Viðskiptaráð fagnar áformum um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og telur breytinguna nauðsynlegt skref í átt að auknum sveigjanleika í ríkisrekstri. Ráðið bendir á að ríkari uppsagnarvernd torveldi mannauðsstjórnun og kosti hið opinbera tugi milljarða árlega. Þá sýni kannanir að meirihluti almennings og stjórnenda hins opinbera styðji afnám áminningarskyldu.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind frumvarpsdrög, sem fela í sér að afnumin verði áminningarskylda sem undanfari uppsagnar annars vegar og lausnar um stundarsakir hins vegar. Þá eru lagðar til breytingar á ákvæðum starfsmannalaga um setningu í embætti o.fl.

Viðskiptaráð fagnar frumvarpsdrögunum og telur þau fela í sér þarft og tímabært skref í þá átt að jafna aðstæður milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins og tryggja nauðsynlegan sveigjan­leika í starfs­mannahaldi ríkisins.

Að mati Viðskiptaráðs hníga engin rök að því að allir opinberir starfsmenn njóti ríkari uppsagnarverndar en starfsfólk í einkageiranum. Ráðið vill koma eftirfarandi á framfæri:

  • 54% almennings og 48% opinberra starfsmanna vilja afnema áminningar­skyldu, en aðeins 23% almennings og 32% opinberra starfsmanna eru andvíg
  • Áminningarskyldan hefur verið nær óbreytt frá innleiðingu árið 1954 og tekur ekki mið af því að hlutverk ríkisins og störf þess hafa breyst að eðli síðan þá
  • Meirihluti stjórnenda hins opinbera telur áminningarskyldu vinna gegn skilvirkum rekstri
  • Svokallaðir svartir sauðir, sem sitja í skjóli aukinnar uppsagnarverndar, kosta hið opinbera 30-50 ma. kr. árlega samkvæmt áætlun ráðsins
  • Ríkari uppsagnarvernd ætti ekki að gilda fyrir alla opinbera starfsmenn, aðeins embættismenn sem telja um 4% opinberra starfsmanna

Ríkari uppsagnarvernd er ein af þeim ýmsu sérréttindum sem opinberir starfsmenn njóta umfram það sem þekkist á almennum vinnumarkaði. Sérréttindin eru styttri vinnutími, ríkari veikindaréttur, ríkari uppsagnarvernd og lengra orlof. [1]

Almenningur og opinberir starfsmenn hlynntir afnámi

Um helmingur almennings og starfsmanna hins opinbera styðja afnám áminningar­skyldunnar (mynd 1). Í könnun Maskínu um viðhorf til afnáms áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar ríkisstarfsmanna kom í ljós að 54% almennings og 48% opinberra starfsmanna voru hlynntir afnáminu. Aðeins 23% almennings og 32% starfsmanna hins voru andvígir afnámi áminningarskyldunnar.

Tímabært að endurskoða uppsagnarvernd

Rík uppsagnarvernd opinberra starfsmanna kemur í veg fyrir að hægt sé að taka á ófullnægjandi frammistöðu eða brotum í starfi með fullnægjandi hætti. Gera þarf stjórnendum hins opinbera kleift að bregðast við slíkum tilvikum og samhliða auka möguleika þeirra til þess að umbuna starfsfólki fyrir góða frammistöðu.

Núgildandi lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar sem kveðið er á um að ekki megi segja upp starfsmanni án þess að hann hafi fyrst verið áminntur og fengið að bæta ráð sitt torvelda málsmeðferð varðandi starfslok opinberra starfsmanna og hafa ítrekað reynst hindrun í þeirri vegferð. Í framkvæmd hafa reglurnar leitt til þess að þrátt fyrir að misbrestir eða brot séu staðfest af dómstólum eru uppsagnir dæmdar ólögmætar sökum strangra lagaákvæða um áminningarskyldu og ríkinu í kjölfarið gert að greiða starfsmanninum skaðabætur.

Þegar lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna voru sett árið 1954 voru opinberir starfsmenn fyrst og fremst embættismenn, en í dag er algengast að þeir sinni þjónustustörfum sambærilegum þeim sem tíðkast í einkageiranum, til dæmis sérfræðistörfum, í fræðslu, afgreiðslu, þjónustu eða umönnun. Reglur um áminningar og uppsagnir hafa þó í meginatriðum staðið óbreyttar þrátt fyrir að opinberir starfsmenn séu margfalt fleiri nú en árið 1954 og samsetning starfa þeirra sé önnur.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2011 segir eftirfarandi:

„Full ástæða [er] til að endurmeta út frá almannahagsmunum sem og reynslunni af áminningar­­reglunum og stjórnsýslu­lögunum hvort ekki sé tímabært að breyta þeim. Þau rök sem færð hafa verið fyrir réttarverndinni eiga ekki við um ýmis störf innan ríkisgeirans. Þessi störf, t.d. störf innan heilbrigðis- og mennta­kerfanna, eru þess eðlis að ekki verður talin hætta á að viðkomandi starfsmenn verði beittir pólitískum þrýstingi í starfi.“ [2]

Stjórnendur hjá ríkinu fylgjandi afnámi uppsagnarverndar

Ríflega tveir af hverjum þremur stjórnendum hjá hinu opinbera telja framkvæmd áminninga og uppsagna flókna og því sé erfitt að beita því úrræði (mynd 2). Þá telur meirihluti þeirra lögin vinna gegn því að stofnanir starfi innan fjárheimilda og rúmlega helmingur að starfs­mannalögin vinni gegn skilvirkni í rekstri ríkisins.

Í núverandi mynd stendur lagaraminn um uppsagnir opinberra starfsmanna gegn eðlilegum sveigjanleika í rekstri ríkisins og vinnur gegn því að stjórnendur þess geti nýtt skattfé með sem árangursríkustum hætti. Afnám uppsagnarverndarverndar myndi veita nauðsynlegt svigrúm til að bregðast við ef starfsmaður bregst starfsskyldum sínum eða brýtur af sér í starfi. Sá mikli meirihluti opinberra starfsmanna sem sinnir störfum sínum af heilindum og alúð á skilið heilbrigt starfsumhverfi þar sem „svartir sauðir“ skemma ekki fyrir. Á það ekki síður við um þá sem reiða sig á góða þjónustu frá hinu opinbera.

Kostnaður vegna uppsagnarverndar hleypur á tugum milljarða

Viðskiptaráð áætlar að ríkari uppsagnarvernd opinberra starfsmanna kosti ríki og sveitarfélög 30 til 50 ma. kr. á ári (mynd 3). [3] Annars vegar eru bein neikvæð áhrif af verndinni, sem endurspeglast í minni afköstum þeirra „svörtu sauða“ sem ekki er hægt að skipta út fyrir hæfara starfsfólk áætluð 3-4% á framleiðni á ársgrundvelli. Hins vegar eru óbein áhrif, sem endurspeglast í neikvæðum áhrifum á vinnustaðinn í heild og valda brotthvarfi starfsfólks áætluð 2-3%.

Þrátt fyrir að með frumvarpinu sé stigið veigamikið skref í rétta átt væri að mati ráðsins rétt að nýta tækifærið við breytingar á lögunum og afnema umframvernd opinberra starfsmanna þegar kemur að starfslokum. Að mati Viðskiptaráðs ætti umframvernd einungis að ná til embættismanna og æðstu stjórnenda og takmarkast við vernd stjórnsýslulaga án sérstakrar áminningarskyldu starfsmannalaga (mynd 4). Frumvarp þess efnis var lagt fram á 130. löggjafarþingi af þáv. fjármálaráðherra en náði ekki fram að ganga. [4]

Af framangreindu er ljóst að ákvæði starfsmannalaga um uppsagnarvernd opinberra starfsmanna eru tímaskekkja og nauðsynlegt að afnema hana í núverandi mynd. Frumvarpið jákvætt fyrsta skref í þá átt.

Viðskiptaráð hvetur til þess að frumvarpsdrögin nái fram að ganga.

Tilvísanir

1 Sjá úttekt Viðskiptaráðs (desember 2024) „Dulbúinn kaupauki: Sérréttindi opinberra starfsmanna“ Slóð: https://vi.is/skodanir/dulbuinn-kaupauki. Sjá einnig úttekt Viðskiptaráðs (maí 2025) „Svartir sauðir, glatað fé: uppsagnarvernd opinberra starfsmanna“. Slóð: https://vi.is/skodanir/svartir-saudir-glatad-fe

2 Ríkisendurskoðun (2011) „Mannauðsmál ríkisins: 1 Starfslok ríkisstarfsmanna“. Slóð: https://www.rikisend.is/reskjol/files/Skyrslur/2011-mannaudur-starfslok.pdf

3 Úttekt Viðskiptaráðs (maí 2025) „Svartir sauðir, glatað fé: uppsagnarvernd opinberra starfsmanna“. Slóð: https://vi.is/skodanir/svartir-saudir-glatad-fe

4 Sjá 307. mál á 130. löggjafarþingi, frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Tengt efni

Sykurskattur óskilvirkt neyslustýringartæki

Viðskiptaráð varar við því að gripið verði til sértækrar skattlagningar á tilteknar matvörur, svo sem sykurskatts, í tengslum við fyrirhugaða …
26. febrúar 2026

Varanleg heimild til ráðstöfunar séreignar á húsnæðislán til bóta

Aukið valfrelsi og fyrirsjáanleiki í ráðstöfun séreignarsparnaðar, ásamt ákalli um endurskoðun lífeyriskerfisins og fækkun opinberra inngripa á …
24. febrúar 2026

Hagræðingarkrafa og útvistun fylgi sameiningu stofnana

Hagræðingarkrafa ætti að fylgja fyrirhugaðri sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs auk þess sem framkvæmd eftirlits …
23. febrúar 2026

Jákvæð skref í einföldun heilbrigðiseftirlits

Viðskiptaráð fagnar áformum um að einföldun og aukið samræmi og skilvirkni í heilbrigðiseftirliti. Framkvæmdin í dag felur í sér mikið óhagræði og …
18. febrúar 2026

Óljós ávinningur af skýrslugjöf um kynbundinn launamun

Afnám skyldu til jafnlaunavottunar í frumvarpi til breytinga á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna er tímabært skref. Þrátt fyrir það er með …
4. febrúar 2026

Skyldubundið samræmt námsmat til bóta

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um drög að reglugerð um samræmt námsmat í grunnskólum. Ráðið fagnar auknu gagnsæi og birtingu samanburðarhæfra …
3. febrúar 2026