
Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins gagnrýna frumvarp atvinnuvegaráðherra um skatthlutfall eldsneytis og telja órökstutt umframeftirlit Samkeppniseftirlitsins endurspegla skilningsleysi og ganga gegn meðalhófssjónarmiðum. Samtökin leggjast jafnframt gegn heimildum ráðherra til verðstýringar og …
22. apríl 2026

Viðskiptaráð telur frumvarp um fækkun heilbrigðisnefnda mikilvægt skref í átt að einfaldara og skilvirkara eftirliti. Þó gagnrýnir ráðið frávik frá gagnsæjum ráðningum sem felast í frumvarpinu og leggur áherslu á að útvista eigi framkvæmd eftirlits til faggiltra einkaaðila til að auka hagkvæmni og …
20. apríl 2026

Viðskiptaráð fagnar framlagningu frumvarps um varanlega heimild til ráðstöfunar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána og auknum fyrirsjáanleika þegar kemur að valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar. Samhliða því að festa ráðstöfun séreignarsparnaðar á höfuðstól …
20. apríl 2026

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjallar um aðgerðir stjórnvalda til að bregðast við verðbólgu með lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti, heimild ráðherra til verðstýringar og auknar valdheimildir Samkeppniseftirlitsins.
16. apríl 2026

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs fjallar um ferð Viðskiptaráðs á Austurland og hvernig tækifærin á Austurlandi leynast í hverjum firðinum.
16. apríl 2026

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsins um að sameina þrjár stofnanir í eina til að auka skilvirkni og bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um skort á samræmingu í matvælaeftirliti.
16. apríl 2026

Viðskiptaráð fagnar því að stefnt sé að setningu heildstæðrar löggjafar um lagareldi. Ráðið telur mikilvægt að samræma regluverkið til að auka fyrirsjáanleika og einfalda stjórnsýslu í kringum greinina en gjaldtöku verður að stilla í hóf.
16. apríl 2026

Viðskiptaráð hélt austur og heimsótti fjölda fyrirtækja um allt Austurland í tveggja daga ferð. Fjórir starfsmenn ráðsins fóru austur og heimsóttu Síldarvinnsluna, Eskju, Kaldvík, Mjóeyri, Alcoa, Launafl og Brúnás.
16. apríl 2026

Viðskiptaráð telur hugmyndina um innviðafélag geta falið í sér framför ef rétt er á málum haldið, en telur frumvarpið í núverandi mynd ófullkomið. Ráðið kallar eftir því að dregið verði úr álögum á skattgreiðendur og að rekstrarumhverfi félagsins verði hannað með skýrari hætti áður en það verður að …
16. apríl 2026

Viðskiptaráð hélt opinn fund á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl sl. um stöðu og horfur í atvinnulífi á Austurlandi. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, hélt framsögu og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs stýrði pallborðsumræðum. Hátt í 80 gestir sóttu …
15. apríl 2026

Viðskiptaráð styður afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og telur breytinguna nauðsynlega til að samræma reglur á opinberum og almennum vinnumarkaði. Ráðið bendir á að núverandi kerfi sé tímaskekkja sem hamli sveigjanleika stjórnenda og dragi úr skilvirkni í opinberum rekstri. Áætlaður kostnaður …
15. apríl 2026

Viðskiptaráð styður frumvarpið og hvetur til þess að það nái fram að ganga. Þá fagnar ráðið því að stærðarmörk fyrirtækja séu hækkuð í samræmi við reglur ESB og að smærri félög fái lengri frest til að skila ársreikningum. Þá varar ráðið við því að ganga lengra en ESB-tilskipanir varðandi …
9. apríl 2026

Viðskiptaráð telur að frumvarp heilbrigðisráðherra um viðbrögð við lyfjaskorti leggi óhóflegar kvaðir á fyrirtæki og feli í sér víðtækari valdheimildir stjórnvalda en tilefni sé til þrátt fyrir að markmið þess séu góðra gjalda verð. Í frumvarpinu er kveðið á um víðtækt inngrip í atvinnu- og …
9. apríl 2026

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00. Auður Vala Gunnarsdóttir hjá Blábjörg, Hlöðver Hlöðversson hjá Alcoa, Kristján Ingimarsson hjá Kaldvík og Gunnþór Ingvason hjá Síldarvinnslunni verða í pallborðsumræðum en Ragnar Sigurður Kristjánsson hjá …
1. apríl 2026

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá átt. Ljóst er að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku hefur á undanförnum árum tafist verulega og að núverandi lagaumhverfi og leyfisferlar …
31. mars 2026

Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs fjallar um yfirbyggingu Reykjavíkurborgar og hvernig umfangsmikið stjórnsýslustig sveitarfélaga eykur flækjur og hægir á ákvarðanatöku.
30. mars 2026

Viðskiptaráð leggst gegn því að umsvif almenna íbúðakerfisins verði aukin, líkt og lagt er til í frumvarpinu. Að mati ráðsins ætti fremur að minnka það með því að draga úr inngripum stjórnvalda á húsnæðismarkaði. Stefna stjórnvalda um að fjölga þeim sem eru á leigumarkaði samrýmist illa vilja …
27. mars 2026

Viðskiptaráð telur tímabært að afnema einkasölu ríkisins á áfengi. Það hefur sýnt sig að núverandi fyrirkomulag er illa til þess fallið að takmarka aðgengi almennings að áfengi. Þannig hefur verslanafjöldi ÁTVR margfaldast á undanförnum áratugum og eru Vínbúðirnar nú orðnar 51 talsins. Þar að auki …
25. mars 2026

Viðskiptaráð leggur til einföldun á stjórnsýslu sveitarfélaga og að dregið verði úr kostnaði sem fylgir umfangsmikilli yfirbyggingu. Afnema ætti kvaðir um lágmarksfjölda kjörinna fulltrúa og miða að því að fækka fulltrúum í stærri sveitarfélögum til samræmis við önnur Norðurlönd.
23. mars 2026

Með afnámi erfðafjárskatts má stuðla að einfaldara og gagnsærra skattkerfi og skapa skilyrði til hagræðingar í stjórnsýslu ríkisins. Erfðafjárskattur felur í sér tvísköttun og leggst auk þess sérstaklega á rekstur fjölskyldufyrirtækja sem getur skapað þrýsting til eignasölu við kynslóðaskipti. Þetta …
18. mars 2026
Sýni 61-80 af 2909