Viðskiptaráð Íslands

Fréttir og greinar

Hér má sjá nýjustu fréttir og greinar frá Viðskiptaráði.

Sía útgefið efni eftir tegund: Fréttir | Greinar

Viðskiptaþing í dag

Viðskiptaþing 2026 fer fram í Borgarleikhúsinu í dag, 12. febrúar. Húsið opnar 12:30 og dagskrá byrjar klukkan 13:00. Dagskrá lýkur um klukkan 16:30 og að henni lokinni verður boðið uppá léttar veitingar.
12. febrúar 2026

Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2026-2028 voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs, sem fram fór í dag. Andri Þór Guðmundsson var endurkjörinn formaður og 37 aðrir voru kjörnir stjórnarmenn, þar af 15 í fyrsta skiptið.
10. febrúar 2026

Uppselt á Viðskiptaþing 2026

Uppselt er á Viðskiptaþing 2026 sem fer fram 12. febrúar næstkomandi. Hægt er að skrá sig á biðlista eftir miðum með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@vi.is.
10. febrúar 2026

Rætt um ESB við eina stærstu sjónvarpsstöð Póllands

Björn Brynjúfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræddi við Polsat um Evrópumál og afstöðu Íslands til Evrópusambandsins.
5. febrúar 2026

Bensíni hellt á verð­bólgu­bálið

„Það er ódýrt að skella skuldinni á aðra þegar ríkisvaldið keyrir sjálft upp kostnað neytenda með því að hækka neysluskatta með skömmum fyrirvara. Valdhafar geta ekki verið hissa á því að varnaðarorð margra aðila hafi nú raungerst. Í viðbrögðum sínum væri nær að taka ábyrgð á erfiðri stöðu og ráðast …
4. febrúar 2026

Þessi koma fram á Viðskiptaþingi 2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Magnús Scheving, Birna Ósk Einarsdóttir, Heiðar Guðjónsson og Friðrik Sophusson eru á meðal þátttakenda í dagskrá Viðskiptaþings 2026 sem fer fram 12. febrúar í Borgarleikhúsinu. Viðskiptaþing er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
23. janúar 2026

Verðbólgan heimatilbúinn vandi

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var gestur í Spursmálum á dögunum. Í þættinum var farið m.a. farið yfir stöðu efnahagsmála, verðbólgu, skattastefnu stjórnvalda, húsnæðismál og áherslur nýs menntamálaráðherra. Hann lýsti bæði áhyggjum af efnahagslegri þróun og bjartsýni á …
20. janúar 2026

Einfalda megi skattkerfið

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fullyrti að einfalda mætti skattkerfið og boðaði breytingar til einföldunar á Skattadeginum sem fór fram í Hörpu í gær. Fjallað var um skatta og skattframkvæmd á breiðum grunni.
16. janúar 2026

Myndband: Er ríkið farið að þjónusta sig sjálft?

Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs, fjallar um opnunartíma stofnana í nýju myndbandi. Frá því að stytting vinnuvikunnar var innleidd árið 2019 hefur helmingur stofnana stytt opnunartíma. Fyrir styttinguna var algengast að stofnanir væru opnar 8 tíma á dag. Núna er algengast að …
15. janúar 2026

Aðalfundur Viðskiptaráðs 2026

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fer fram þriðjudaginn 10. febrúar kl. 11:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fulltrúum allra aðildarfélaga er heimilt að sækja fundinn.
13. janúar 2026

Pakkaleikur á fjöl­miðla­markaði

„Einu lausnirnar sem er að finna í fjölmiðlapakkanum er meira af því sama og hefur verið reynt á fjölmiðlamarkaði undanfarin ár, þ.e. auknar opinberar greiðslur til einkarekinna fjölmiðla og varðstaða um yfirburðarstöðu RÚV.“
7. janúar 2026

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2026.
5. janúar 2026

Skattadagurinn fer fram 15. janúar

Hinn árlegi Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins verður haldinn 15. janúar kl. 8:30-10:00 í Silfurbergi, Hörpu.
5. janúar 2026

Opnunartími milli jóla og nýárs

Lokað verður á skrifstofu Viðskiptaráðs á aðfangadag og á gamlársdag.
22. desember 2025

Kristín S. Hjálmtýsdóttir á ný til Viðskiptaráðs

Kristín S. Hjálmtýsdóttir hefur hafið störf hjá sem sérfræðingur á alþjóðasviði hjá Viðskiptaráði. Kristín snýr aftur til ráðsins eftir 11 ára fjarveru.
19. desember 2025

Ragnar Sigurður tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs

Ragnar Sigurður Kristjánsson er nýr hagfræðingur Viðskiptaráðs. Ragnar hefur starfað á málefnasviði Viðskiptaráðs frá 2023.
18. desember 2025

Viðskiptaráð leitar að hagfræðingi á málefnasvið

Viðskiptaráð leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í málefnateymi ráðsins. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér greiningar, skrif og miðlun efnis sem miðar að því að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja og hafa jákvæð áhrif á opinbera umræðu um efnahags- og þjóðmál.
18. desember 2025

Myndband: Skattar hækka um 25 milljarða á næsta ári

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fer í nýju myndbandi yfir skattahækkanir næsta árs sem samtals nema 25 milljörðum króna. Stjórnvöld hafa boðað átta skattahækkanir og eina skattalækkun í frumvarpi til laga um skatta og gjöld.
12. desember 2025

Verðbólgulækkun á Peningamálafundi Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð stóð fyrir árlegum Peningamálafundi í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel í gær, 27. nóvember. Frábær þátttaka var á viðburðinn í ár en um 200 manns mættu til að hlýða á umræðu um efnahagsmál.
28. nóvember 2025

Vaxtaverkir og hagstjórn: ávarp formanns á Peningamálafundi

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp á Peningamálafundi sem fram fór 27. nóvember. Í ræðu sinni sagði Andri að nýleg vaxtalækkun Seðlabankans væri lítið skref í rétta átt en að áföll í hagkerfinu hefðu kallað á hana. Andri gagnrýndi áframhaldandi hallarekstur ríkisins …
28. nóvember 2025
Sýni 21-40 af 1973 samtals