Dagskrá Viðskiptaþings 2006 hefur nú verið birt en þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica kl. 13.30 þann 8. febrúar. Jón Karl Ólafsson, formaður Viðskiptaráðs, opnar fundinn og að því loknu tekur til máls Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra.
8. febrúar 2006
Föstudaginn 20. janúar nk. kl. 16:00 opnar Kristín Geirsdóttir, myndlistarmaður sýningu á verkum sínum í húsakynnum Viðskiptaráðs, Kringlunni 7. Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands, málaradeild 1989.
20. janúar 2006
Þann 20. janúar nk. stendur Bresk-íslenska viðskiptaráðið fyrir hádegisverðarfundi með Geir H. Haarde, Utanríkisráðherra, í London. Icelandair og Íslandsbanki styrkja viðburðinn, sem verður haldinn á Jumeirah Carlton Towers hótelinu, Cadogan Place, London SW1.
20. janúar 2006
Staðsetning: Nordica Hótel. Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins. Morgunverðarfundur fimmtudaginn 12. janúar kl. 8:15 - 10.30 á Nordica Hótel. Fundarstjóri er Þórdís Sigurðardóttir, yfirmaður norrænna fjárfestinga hjá Baugi Group.
12. janúar 2006
Staðsetning: Grand Hótel Reykjavík, Gullteig A kl. 08:15. Peningamál, ársfjórðungsrit Seðlabanka Íslands kemur út 2. desember. Davíð Oddsson seðlabankastjóri kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir afstöðu bankans til efnahagsmálanna á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands 5. desember.
5. desember 2005
Við ætlum að halda upp á 10 ára afmælið okkar þann 10. nóvember á Nordica Hótel frá kl 8.-9.30 með eftirfrarandi hætti: Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri ÞÍV og fyrrverandi íbúi í Freiburg fer stuttlega yfir sögu ráðsins. Þýskaland í dag , hvað er framundan?
10. nóvember 2005
Seed Forum þingið verður haldið á Hótel Nordica, föstudaginn 28. október kl. 9:00. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson setur ráðstefnuna. Fyrirlesarar eru Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands.
28. október 2005
Staðsetning: Skrifstofa Viðskiptaráðsins. Myndlistasýningar í sölum Viðskiptaráðsns halda áfram eins og verið hefur síðastliðin tvö ár. Öllum aðildarfélögum VÍ er boðið á opnun sýningar Aðalheiðar Valgeirsdóttur myndlistarmanns.
27. október 2005
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra opnar sýninguna fimmtudaginn 26. október kl. 10:00. Á sýningunni gefst fólki tækifæri á að kynna sér ýmsar nýjungar og mynda viðskiptatengsl. Sýnendur koma frá Eistlandi, Sviðþjóð, Bretlandi og Íslandi. Kynnt verður ný íslensk uppfinning og …
26. október 2005
Bresk-íslenska viðskiptaráðið í samráði við íslensku Yfirtökunefndina og Fjármálastofnun Háskólans í Reykjavík efna til ráðstefnu föstudaginn 21. október kl. 13:00 - 16:15 með yfirskriftinni Yfirtökur. Gestur ráðstefnunnar verður Noel Hinton, aðstoðarforstjóri bresku Yfirtökunefndarinnar.
21. október 2005
15% landið Ísland er yfirskrift ráðstefnu sem Viðskiptaráð Íslands efnir til hinn 20. október næstkomandi í samráði við Deloitte og KPMG. Gestir ráðstefnunnar verða m.a. Dr. Madsen Pirie forseti Adam Smith Institute og Siim Raie framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Eistlands.
20. október 2005
Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands afhendir Verzlunarskóla Íslands styttu eftir Steinunni Þórarinsdóttur myndlistarkonu föstudaginn 14. október nk. Athöfnin hefst kl. 11.00 og verður fyrir utan aðalinngang Verzlunarskólans. Allir velunnarar Verzlunarskólans eru hvattir til að mæta.
14. október 2005
Þýsk-íslenska viðskiptaráðið og Landssamband bakarameistara, LABAK, standa fyrir kynningu á þýskum brauðum og kökum í bakaríum fyrri hluta októbermánaðar, undir kjörorðinu Októberfest - þýskir dagar í íslenskum bakaríum. Átakið hefst formlega, kl. 15:00 laugardaginn 1. október næstkomandi, með …
1. október 2005
Viðskiptaráð býður félögum sínum til kynningar á einkaleyfum, vörumerkjum og hönnun og hvernig unnt er að fá slík réttindi skráð með tilheyrandi réttarvernd. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 22. september n.k. kl. 14:00 og er opinn öllum félögum Viðskiptaráðs Íslands.
22. september 2005
Á vordögum á síðasta ári efndi Verslunarráð til hópferðar austur á firði (flogið að morgni og til baka í eftirmiðdaginn) til þess að skoða það svæði þar sem áformað var að reisa álver við Reyðarfjörð, og um leið að skoða framkvæmdir við virkjun Landsvirkjunar við Kárahnjúka undir leiðsögn forstjóra …
20. september 2005
Viðskiptaráð Íslands mun standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 13. september. Nú er hálft ár síðan viðskiptalífið ræddi á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs um hvort Íslandsvélin væri ofhitna. Nú hittast frummælendur að nýju og fara yfir stöðu mála.
13. september 2005
Í haust kynnir Viðskiptaráð skýrslu um samkeppni ríkisstofnana við einkaaðila í hinum ýmsum greinum atvinnulífsins. Ríkisstofnunun hefur ekki bara fjölgað undanfarin ár heldur hafa þær einnig stækkað. Allar þessar stofnanir hafa lögbundnu hlutverki að gegna sem yfirleitt er nokkuð skýrt afmarkað. …
3. september 2005
Bresk-íslenska verslunarráðið stendur fyrir siglingu á Thames ánni í Lundúnum þann 15. júní nk. Siglingin verður með svipuðu sniði og hin vinsæla sigling í september 2003. Farið verður frá Westminster Pier klukkan 19:00 og komið til baka klukkan 22:00. Verð fyrir meðlimi BRÍS er £10 og £15 fyrir …
15. júní 2005
Lars-Kare Legernes framkvæmdastjóri Verslunarráðs Óslóarborgar mun fjalla um útrás norskra fyrirtækja til Asíu á fundi í húsakynnum Verslunarráðsins kl. 13:00, föstudaginn 27. maí nk. (7. hæð í Húsi verslunarinnar).
27. maí 2005
Sýni 261-280 af 409 samtals